Úrræðið henti fyrir hvers kyns afbrot en í ferlinu sé sjónum beint að þeim skaða sem einhver hefur orðið fyrir, áhrifum hans og afleiðingum og hvernig sé mögulega hægt að bæta úr því. Þær segja að fyrir þolendur í leit að réttlæti sé uppbyggileg réttvísi eitt úrræði af mörgum. Það virki best með formlegri leiðum eins og að tilkynna og kæra.
Kristín og Þóra hafa unnið saman um árabil og kynntust þegar þær störfuðu báðar með þolendum kynferðisofbeldis. Kristín vann í barnavernd og sérhæfði sig þar í kynferðisbrotum gegn börnum og aðstandendum þeirra.
„Þegar þú þarft að senda barn í lögreglurannsókn eða í könnunarviðtal í Barnahúsi þarftu að spyrja foreldra nærgöngulla spurninga um það hvort þau sjálf eða einhver nálægt þeim hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ég sat mjög oft með grátandi fólk hjá mér sem var í fyrsta skipti að opna sig um kynferðisbrot eða sem hafði sagt frá og enginn hlustaði. Fólk sem enn var að mæta geranda í lífinu og í þessu viðtali helltist yfir þau að fimmtán ára sonur eða dóttir þeirra væri að fara að burðast með þetta alla sína ævi eins og þau,“ segir Kristín.
Hún hafi fljótt séð að það vantaði eitthvað inn í kerfið. Í leit að úrræði til að fylla þetta gat hafi hún fundið uppbyggilega réttvísi.
Hvað er uppbyggileg réttvísi?
Uppbyggileg réttvísi er leið til að bregðast við skaða með ábyrgð, samtal og uppbyggingu að leiðarljósi. Um er að ræða nálgun sem beinir sjónum að þeim skaða sem hefur orðið, áhrifum hans á fólk og því hvað þarf til að vinna með afleiðingarnar og bæta úr eftir því sem kostur er.
Þessi nálgun getur nýst þegar afbrot hefur verið framið en einnig við aðrar aðstæður þar sem athafnir eða hegðun hafa valdið öðrum skaða. Þetta getur átt við hvort sem um er að ræða sálrænan eða líkamlegan skaða.
Í uppbyggilegri réttvísi er áherslan ekki fyrst og fremst á hvaða lög eða reglur voru brotin, heldur á þann skaða sem varð, hverjir urðu fyrir honum og hver ber ábyrgð.
Athyglinni er beint að fólkinu sem málið snertir:
- Hver varð fyrir skaða?
- Hvaða áhrif hafði það sem gerðist?
- Hverjar eru þarfir þeirra sem málið snertir?
- Hver ber ábyrgð á skaðanum?
- Hvað þarf til að bæta úr þeim skaða sem orðið hefur, eftir því sem unnt er?
Uppbyggileg réttvísi felur í sér að gengist er við því sem gerðist, tekist á við skaðann sem af því hlaust og sá sem olli skaðanum studdur til að axla ábyrgð.
Kristín og Þóra hafa miðlað í tæplega 30 slíkum málum á Íslandi. Flestir þolendur sem hafa leitað til þeirra eru þolendur kynferðisofbeldis og allar kvenkyns. Þær hafa vísað málum frá sem ekki henta og segja úrræðið sérstaklega henta í tilvikum ungmenna. Úrræðið nýtist sérstaklega þolendum sem hvergi annars staðar fá svar eða áheyrn.
„Uppbyggileg réttvísi kemur ekki í stað réttarvörslukerfisins og það er mjög mikilvægt að fólk viti það. Við viljum vera í góðu samstarfi við réttarvörslukerfið,“ segir Þóra. Þær kynni það ávallt fyrir þeim sem leita til þeirra á sama tíma og þær ítreka að þær virði ávallt vilji fólk ekki fara þá leið.
„Þetta er ekki eitt eða annað, en það er yfirleitt langbest saman.“
Greiða fyrir þjónustu við gerendur líka
Þær segja það erfiðasta við úrræðið að þolendur á Íslandi þurfi að greiða fyrir alla þjónustuna. Í Bretlandi, Skotlandi og á Nýja-Sjálandi greiði dómsmálaráðuneytið fyrir þjónustuna samkvæmt ákveðnum skilmálum. Kristín og Þóra segja þetta þeirra helsta baráttumál í dag.
„Við viljum að þolendur geti óskað eftir því að nota þetta úrræði og upplifi ekki fjárhagslegar byrðar við það.“
Þær segja kostnaðinn mismunandi miðað við undirbúning. Það geti verið fimm fundir en þeir geti líka orðið 25 og vert sé að taka fram að þolandi greiði í dag fyrir öll viðtöl sín og öll viðtöl geranda líka.
„Það er það sem er flókið og við horfum dálítið til Bretlands, því við lærðum þar, og þar er þetta eitt úrræða sem er í boði fyrir fólk sem er brotið á,“ segir Þóra. Annaðhvort sé vægt gjald eða þjónustan alveg frí og óháð því hvort fólk kæri til lögreglu.
Með tilliti til þess hversu undirbúningurinn geti verið mikill í sumum tilfellum finnist þeim mjög áríðandi að þolendur þurfi ekki að bera þennan kostnað.
„Það er hræðilegt að vera búinn að borga kannski þrjú viðtöl og þá kemur í ljós að það er ekki hægt að halda áfram. Þó svo að þolandi sé tilbúinn þá getur komið fram í símtali við geranda að hann sé ekki tilbúinn eða vilji ekki taka þátt.“
Þær segja tvö mál hafa farið þannig. Í þeim tilvikum hafi þær þurft að fara í gegnum lögfræðing geranda því það sé enginn formlegur rammi um starf þeirra. Það komi í hlut lögfræðingsins að útskýra erindið fyrir gerandanum.
„Við erum í samtali við lögreglu og fangelsismálayfirvöld um að það þurfi ramma um hvernig við megum vera í samskiptum, hvaða upplýsingar megi afhenda okkur, eins og til dæmis símanúmer,“ segir Kristín. Í dag sé lögfræðingur yfirleitt í hlutverki milliliðs.
Skrifuðu bók saman um fyrirgefninguna
Í íslensku samfélagi eru ekki mörg mál sem hafa ratað þessa leið og því ekki hægt að vísa í slík mál. Þekktasta dæmið um það þegar þolandi og gerandi hafa komið saman er eflaust mál Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur og Tom Stranger sem gáfu saman út bókina Handan fyrirgefningar árið 2017. Tom nauðgaði Þórdísi Elvu þegar hún var unglingur og þau voru kærustupar. Í bókinni er fjallað um samband þeirra, ofbeldið sem átti sér stað og leið þeirra að fyrirgefningu.
Þórdís Elva kærði aldrei ofbeldið en sagði í bókinni það hafa haft djúpstæð áhrif á alla hennar tilveru. Mörgum árum síðar skrifaði hún Tom og lýsti ofbeldinu sem hann beitti hana, í tilraun til að skila skömminni og rjúfa eigin þögn. Hún bjó sig undir neikvæð viðbrögð en fékk þess í stað skilyrðislausa játningu frá Tom, með ósk um að gera upp fortíðina í sameiningu, sem þau svo gerðu víða um heim með fyrirlestraröð.
Eitt högg sem breytti öllu
Þórdís Elva og Tom fóru ekki í gegnum uppbyggilega réttvísi en um eitt slíkt mál er fjallað í leikriti sem nú er til sýningar í Þjóðleikhúsinu, Högg.
Verkið byggir á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne, sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi. Eitt örlagaríkt laugardagskvöld blandar hann sér í ágreining í miðbæ Nottingham og kýlir ókunnugan ungan mann sem lætur lífið. Jacob er dæmdur í fangelsi fyrir að hafa orðið manninum, James, að bana og þegar hann er látinn laus blasir fátt annað við en gamla lífernið. Þegar Joan og David, foreldrar unga mannsins sem dó, óska eftir því að fá að komast í samband við Jacob til að spyrja hann nokkurra spurninga byrjar líf hans að taka breytingum sem engan hefði getað órað fyrir.
Þóra og Kristín hafa séð verkið tvisvar og hitt Jacob, Joan og David á sýningunum. Þóra segir það hafa verið öðruvísi upplifun að sjá sýninguna vitandi að móðir James, Joan, hafi verið í salnum.
„Þetta fór aðeins meira inn á tilfinningasviðið hjá mér í seinna skiptið,“ segir Kristín. Það hafi einnig haft mikil áhrif á hana að setjast niður með þeim öllum. Þær hrósa leikhópnum og aðstandendum leikritsins fyrir að kynna sér ferlið, úrræðið og annað sem viðkemur leikritinu. Það skili sér í verkinu sem endaði svo á sviðinu.
Einstakt að upplifa söguna á sviði
„Við erum búnar að lifa og hrærast í þessu síðustu fjögur ár, fyrst að læra í ár og svo að vinna við þetta í þrjú ár og smám saman að byggja þetta upp,“ segir Kristín.
Hún segir að þó svo að þær hafi upplifað ýmislegt á þessum tíma sé einstakt að fá að upplifa sögu þeirra Jacob, Joan og David á sviðinu. Hún sé að mörgu leyti einstök og sýni á kröftugan hátt hversu frábært úrræðið geti verið.
„Bæði fyrir þann sem verður fyrir skaða og þann sem skaðar,“ segir Þóra. Það allra mikilvægasta við úrræðið sé forvarnargildi þess.
„Rannsóknir frá Bretlandi til dæmis sýna að það dregur töluvert úr líkum á að fólk brjóti aftur af sér þegar það fer í gegnum þetta úrræði,“ segir hún. Högg sé frábær saga um mann sem hefði eflaust sjálfur verið inn og út úr fangelsi hefði ekki verið gripið svo inn í líf hans.
„Jacob segir sjálfur að þau (Joan og David) hafi bjargað sér.“
Kristín segir mjög sterkt að sjá þau öll meta það þannig að þau hafi bjargað hvert öðru.
Fái að heyra hvernig var að koma að heimilinu í rúst
Þóra segir þetta þó langt því frá eina tilfellið þar sem úrræðið hafi heppnast vel. Í námi sínu í Bretlandi hafi þær heyrt margar sögur af fólki sem hafði orðið fyrir fjölbreyttum brotum.
„Við heyrðum til dæmis frá gerendum um hvernig það var að horfast í augu við það í fyrsta skipti, þótt það sé bara eftir innbrot, að það eru manneskjur sem komu að heimili sínu í rúst,“ segir Þóra.
Þetta hafi jafnvel verið fólk sem hafði lokið fangelsisvist en mögulega ekki upplifað neina betrun í þeirri vist.
„Þjóðfélagið er mjög upptekið af því að refsa og auðvitað eiga að vera afleiðingar en til dæmis í tilfelli Jacobs sá maður alveg í leikritinu að það varð engin betrun hjá honum fyrr en hann fór í gegnum þetta ferli,“ segir Þóra.
Kristín segir að á Nýja-Sjálandi hafi til dæmis verið lögð áhersla á að fara með unga gerendur í gegnum uppbyggilega réttvísi í stað þess að dæma þá til refsivistar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir frekari afbrot.
Hentar ekki alltaf
Þóra segir að þó gert sé ráð fyrir því í hugmyndafræði uppbyggilegrar réttvísi að það skipti ekki máli hvernig einhver hafi brotið á sér þá henti það ekki endilega öllum málum.
„Fá heimilisofbeldismál myndu rata í gegnum þetta kerfi,“ segir hún.
Kristín segir stærstan hluta þeirra mála sem koma til þeirra kynferðisbrotamál, bæði mál þar sem gerandi hafi verið dæmdur og sem hafi aldrei farið neina formlega leið.
„Þú færð ekkert endilega réttlæti þó að einhver sé dæmdur í fangelsi eða dæmdur til að greiða þér einhverja hundruð þúsund kalla í bætur. Það svarar svo litlu sem þú situr eftir með. En að fá áheyrn á hvað þetta gerði þér, hvernig þetta breytti þínu lífi og að þú lifir ekki sama lífi og áður. Að fá að heyra frá geranda að hann hafi eftirsjá, það getur breytt miklu.“
Kristín segir þetta þannig ekki snúast um að fá játningu heldur að gerandi hafi einhvern skilning á því hvaða afleiðingar brotið hafði á manneskjuna og að þolandi fái að heyra að gerandi ætli sér ekki að brjóta á öðrum með sama hætti.
„Það er oft það sem þolendur eru að leitast við að fá, hvort gerendur séu búnir að gera eitthvað í sínum málum og hvort þá langi að koma í veg fyrir að hlutirnir verði áfram þannig í þeirra framkomu.“
Enn hræddar við að hitta geranda sinn
„Maður hefur verið með svo marga þolendur hjá sér sem hafa farið í gegnum allt réttarvörslukerfið og finna samt sem áður ekki leið til að halda áfram. Þau vantar kannski enn að gerandi gangist við því að hafa brotið á þeim og oft fullvissu um að gerandi ætli ekki að gera þeim neitt frekar,“ segir Þóra.
Sama hvernig þolendur hafa tekist á við sín mál eiga þeir það þó sameiginlegt að upplifa hræðslu við að hitta geranda sinn á förnum vegi og viðbrögð hans.
„Þolendur hugsa: Hvað ef ég rekst á hann, hvað gerir hann og segir hann?,“ segir Þóra og að í ferli uppbyggilegrar réttvísi sé gert ráð fyrir því að fólk geti spurt akkúrat þessara spurninga.
„Fyrir suma er það bara: Af hverju ég? Var það eitthvað við mig sem gerði það að verkum að þú ákvaðst að brjóta á mér kynferðislega?“
Kristín segir að fólk verði þó að muna að í þessu úrræði sé ekki endilega gert ráð fyrir skýrum svörum. Í Högg fari spurningar á milli þeirra Jacob og Joan og David sem sé ekki endilega í samræmi við kennsluefnið. Kristín útskýrir að vegna þess að Jacob játaði fóru ekki fram hefðbundin réttarhöld þar sem hann svaraði spurningum og því sé ferlið nýtt í það
„Hann játar og er ekki að taka á sig sök eða sakfella sjálfan sig með einhverju í svörum sínum.“
Fá viðurkenningu á því að lífið breyttist
Kristín segir að þegar þær leiði fólk saman sem ekki hafi farið í gegnum réttarkerfið eða málið hafi jafnvel verið fellt niður þá sé ekki hægt að spyrja svo beinna spurninga heldur snúist ferlið meira um að gerandi viðurkenni að líf þolanda hafi breyst og að atburðurinn hafi haft þessi áhrif á þolanda.
„Það er hlustun og viðurkenning. Þetta er eitthvað sem gerist á milli fólks. Þolandi er kannski búinn að vera að vinna í sínum málum og langar að gerandi eða meintur gerandi fái að vita hvaða áhrif atburðurinn hafði á hann.“
Þær segja ekki hægt að nýta neitt sem kemur fram hjá þeim gegn einhverjum í til dæmis dómsmáli. Þá sé mikilvægt að fólk viti að þung og erfið mál geti tekið mörg ár í undirbúningi og vinnslu áður en fólk fær einhvers konar lúkningu. Það eigi sérstaklega við um ofbeldismál, kynferðisofbeldismál og þar sem hafi orðið mannslát.
„Áður en það kemur til þess að klárast kannski í bréfaskrifum til dæmis. Fólk þarf ekki að hittast.
Svo finnur fólk sjálft hvað það þarf og það er ekkert endilega sátt, heldur bara að leggja fram sínar spurningar og fá svör.“
Skilji að brotið var á annarri manneskju
Í leikritinu spyrja foreldrarnir hvort þau megi segja Jacob frá syni sínum sem lést, James. Kristín segir oft mikilvægast að gerandi fái að vita að hann hafi brotið á manneskju; manneskju með væntingar og vonir, og að manneskjan, eða aðstandendur, sakni einhvers í kjölfar afbrotsins.
„Það er þessi viðurkenning í áheyrninni sem getur skipt svo miklu máli og stundum vill fólk ekkert annað.“
Kristín segir reglu eitt, tvö og þrjú að valda ekki meiri skaða í málinu og þær þurfi alltaf að vinna eftir því.
„Það er það sem er flókið í þessu. Stundum þurfum við að segja stopp því okkar mat er að málið geti ekki farið lengra.“
Það eigi til dæmis við þegar fólk sé með óraunhæfar væntingar eða það sem það vill fara fram á getur verið skaðlegt fyrir hinn.
„Eða mótaðilinn er ekki kominn nógu langt í sínu lífi og sýnir ekki samhygð eða skilning.“
Sjaldnast gerendur sem hefja samtalið
Þær segja langalgengast að þolendur hafi samband en það hafi komið fyrir að gerendur leiti til þeirra.
„Það sem flækir það er að þá vitum við ekki hvar þolandi er staddur í sínu ferli og það getur verið hættulegt að setja sig í samband við þau því það getur raskað þeirra ró,“ segir Kristín.
Þess vegna hafi þær ekki samband við þolendur fyrir gerendur nema að vandlega athuguðu máli.
Þær segja tvö slík mál hafa ratað á þeirra borð og annað hafi nánast verið stöðvað strax en hitt hafi farið langt, það hafi verið sérstakar aðstæður, og sé í bið núna.
Þær segja úrræðið henta fullorðnum og ungmennum og að þær taki að sér þolendur allt niður í fimmtán ára. Það henti ekki yngri börnum því það þurfi ákveðinn þroska til að fara í gegnum það. Þær segja úrræðið sérstaklega gagnast ungu fólki.
„Flest málin varða ungmenni og það stafar helst af því að barnverndarþjónusturnar eru tilbúnar að greiða fyrir ferlið,“ segir Kristín og bætir við að stundum hafi það einnig verið mat Barnahúss að það geti verið gott fyrir barn sem hefur verið í meðferð hjá þeim að fara í gegnum þetta ferli líka.
„Þarna eru fagaðilar sem þekkja ferlið að meta það þannig að svo að viðkomandi barn fái að klára sína úrvinnslu verði þetta að vera hluti af því,“ segir Þóra.
„Það er fullt af ungu fólki sem verður á. Viljum við að lífi þess sé lokið á milli tvítugs og þrítugs eða er ávinningur í því að hjálpa því svo það geti orðið að betra fólki og verið á vinnumarkaði? Ef maður hugsar um þetta svona þá hljótum við að sjá gróðann,“ segir Kristín.
Hópur sem skiptist í fylkingar
Þóra segir að ef eitthvað slíkt gerist í hópi ungmenna skiptist hópurinn oftast í fylkingar og sá sem á að hafa brotið á sér fær hótanir og getur ekki ferðast um hverfið eða mætt í skólann á sama tíma og þolandi þorir ekki að mæta af ótta við að mæta geranda.
„Þetta eru kannski bara fimmtán ára gömul börn og það þarf að finna einhverja leið til að halda áfram. Það sem uppbyggileg réttvísi snýst um er að það séu afleiðingar. Ekki endilega refsing, heldur afleiðingar og að fólk viti að það sem það gerði hafði líka afleiðingar fyrir aðra,“ segir Þóra.
Kristín tekur undir það en segir að í ferlinu sjái þær að fyrir suma skipti þessar afleiðingar ekki máli og saga þolanda hreyfi ekki við þeim.
„Þetta er fólkið sem stoppar í áhættumatinu,“ segja þær og að þetta fólk komist ekki lengra í ferlinu.
Þóra segir að í langflestum kynferðisbrotamálum þekkist gerendur og þolendur og þá geti þetta verið mikilvægt svo fólk geti haldið áfram með líf sitt
„Þá helst til að ræða framhaldið, hvernig þolandi vill að gerandi heilsi sér ef þau hittast óvart í Kringlunni, vill hún kannski að hann heilsi sér ekki eða líti undan? Það eru þessi atriði.“
Þurfi lítið til að beina þeim í rétta átt
Þóra segir þær Kristínu hafa rætt þetta sérstaklega við Joan og hversu miklu máli þetta skiptir.
„Ungt fólk þarf kannski ekkert rosalega mikið svo hægt sé að beina því í rétta átt, en sömuleiðis þarf ekki mikið svo það haldi áfram að brjóta af sér og verði mjög kostnaðarsamt fyrir samfélagið,“ segir Þóra.
Joan hafi í þessu samtali þó líka bent þeim á að hefði hún ekki fengið aðstoð hefði hún sömuleiðis mögulega ekki fundið sér leið aftur á vinnumarkaðinn.
Nýleg rannsókn og skýrsla Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir Tryggingastofnun, stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins varpaði einmitt ljósi á sterk tengsl á milli áfalla, kynbundins ofbeldis, mikils álags og hás hlutfalls kvenna á örorkulífeyri á Íslandi.
Þóra segir að fyrir þolendur og gerendur geti það haft langvarandi afleiðingar og uppbyggileg réttvísi sé góð leið til að koma í veg fyrir það. Því skipti máli að þetta sé möguleiki sem er í boði fyrir alla þolendur.
„Svo er það sem er ekki metið til fjár, allar þessar þjáningar sem er hægt að koma í veg fyrir.“
Hafi fólk áhuga á að fara þessa leið segja þær að það eina sem fólk þurfi að gera sé að hafa samband. Fyrstu viðtöl fari í að kynnast þeim og málinu þeirra, meta næstu skref og hvort að málið eigi erindi hjá þeim. Það þurfi til dæmis að skoða hvernig þolandi er búinn að vinna í sínum málum og stundum þurfi fleiri en eitt viðtal. Þá fari þær einnig yfir úrræðið og hvaða væntingar fólk getur haft.
Þær segjast á fullu að kynna starfsemina og séu í samtali við fangelsismálayfirvöld, saksóknara, ráðuneytin og fleiri aðila.
Geti verið mikið óöryggi eftir innbrot
Í dag er engin bið í þjónustu hjá þeim. Á þessum þremur árum hafa þær unnið að um þremur tugum mála sem þær segja viðráðanleg. Þær vonist þó til þess að geta þjálfað fleiri aðila, líka með tilliti til vanhæfni, því það hafi komið upp í einu máli að þær voru báðar vanhæfar.
„Við viljum líka gjarnan fá karlmenn með okkur í þetta, það er svo mikilvægt að hafa sjónarmið beggja kynja.“
Þær segja alla þolendur sem hafa leitað til þeirra vera konur.
„Konur eru útsettari fyrir kynferðisbrotum, sem er stór hluti af því sem við vinnum með, en karlmenn eru útsettari fyrir líkamsárásum sem geta skilið eftir sig mjög mikil ör og óöryggistilfinningu. Þetta er líka frábær aðferð fyrir þá. Innbrot geta líka skilið eftir sig mikið óöryggi, þegar einhver fer inn á heimili manns og rótar í dótinu.“
Hvað er uppbyggileg réttvísi?
Uppbyggileg réttvísi er leið til að bregðast við skaða með ábyrgð, samtal og uppbyggingu að leiðarljósi. Um er að ræða nálgun sem beinir sjónum að þeim skaða sem hefur orðið, áhrifum hans á fólk og því hvað þarf til að vinna með afleiðingarnar og bæta úr eftir því sem kostur er.
Þessi nálgun getur nýst þegar afbrot hefur verið framið en einnig við aðrar aðstæður þar sem athafnir eða hegðun hafa valdið öðrum skaða. Þetta getur átt við hvort sem um er að ræða sálrænan eða líkamlegan skaða.
Í uppbyggilegri réttvísi er áherslan ekki fyrst og fremst á hvaða lög eða reglur voru brotin, heldur á þann skaða sem varð, hverjir urðu fyrir honum og hver ber ábyrgð.
Athyglinni er beint að fólkinu sem málið snertir:
- Hver varð fyrir skaða?
- Hvaða áhrif hafði það sem gerðist?
- Hverjar eru þarfir þeirra sem málið snertir?
- Hver ber ábyrgð á skaðanum?
- Hvað þarf til að bæta úr þeim skaða sem orðið hefur, eftir því sem unnt er?
Uppbyggileg réttvísi felur í sér að gengist er við því sem gerðist, tekist á við skaðann sem af því hlaust og sá sem olli skaðanum studdur til að axla ábyrgð.