Austan 10-18 og dálítil él syðst á morgun, annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt. Frost 1 til 15 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Austlæg átt 3-10 m/s, en 10-15 syðst. Él suðaustantil, en bjart með köflum norðan- og vestanlands. Frost 0 til 12 stig, kaldast fyrir norðan, en hiti kringum frostmark við suður- og vesturströndina.
Á miðvikudag:
Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og víða bjart. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og að mestu þurrt. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Suðaustanátt og dálítil rigning eða slydda syðst, annars þurrt að kalla. Hægt hlýnandi veður.
Á laugardag:
Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu eða slyddu sunnan- og vestantil.
Á sunnudag:
Líklega breytileg átt og úrkoma í flestum landshlutum. Hiti víða kringum frostmark.