Þá barst Lögreglunni á Vestfjörðum í síðustu viku tilkynning um líkamsárás á Tálknafirði. Einn var handtekinn vegna árásarinnar sem er í rannsókn hjá lögreglunni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í færslu frá lögreglunni um hvað gekk á á Vestfjörðum í síðastliðinni viku. Þar segir að einn hafi gist í fangaklefa á Ísafirði um helgina vegna ölvunar.
Annar ölvaður maður var handtekinn á Patreksfirði, en sá mun hafa verið ölvaður við akstur og reynt að stinga lögregluþjóna af þegar þeir reyndu að stöðva hann. Skömmu síðar var hann handtekinn en þá hafði hann ekið á tré og skemmt bíl sinn.
Einnig segir þar að ökumaður hafi sloppið lítið meiddur eftir að flutningabíll hans fór út af veginum og valt í Ísafjarðardjúpi. Bíllinn skemmdist þó mikið.
Lögreglan segir einnig frá því að tveir bílar hafi skollið saman skammt frá Bolungarvík og annar ökumaðurinn hafi verið fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar. Í öðru tilfelli valt bíll við Ódrjúgsháls í miðri síðustu viku. Tveir voru í bílnum og sluppu án meiðsla.