Dómsmálaráðuneytið vinnur að mælaborði um afbrotatölfræði í samstarfi við lögreglu. Þetta kemur fram í viðtali Frosta Logasonar við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í Spjallinu með Frosta Logasyni. Vinnan bar á góma þegar Frosti spurði hvort birta ætti tölur um afbrot eftir uppruna. Ráðherra sagði að vinnan stæði yfir og að misjafnt væri hversu auðvelt væri að birta upplýsingarnar.
Þorbjörg benti á að lögreglan birti þegar ýmsa afbrotatölfræði og að hluti af verkefninu snerist um hvernig hún væri sett fram. Ráðuneytið skoði einnig sambærilega framsetningu á gögnum hjá Útlendingastofnun og Fangelsismálastofnun. Þar gæti meðal annars komið fram hverjir afplána dóma og fyrir hvaða brot.
Segir gögnin geta bætt umræðuna
Þorbjörg sagði að mælaborð gæti auðveldað bæði almenningi og stjórnvöldum að sjá hvað væri að gerast í kerfunum. Hún lýsti því sem „ákveðnu verkfæri gegn upplýsingaóreiðu“.
Verða afbrotatölur birtar eftir uppruna? Þorbjörg Sigríður segir vinnuna standa yfir: Sumt sé hægt að birta, annað sé flóknara. Spjallið með Frosta Logasyni á Brotkast. #brotkast #spjallið https://t.co/Z4POLcxa4Z
— Brotkast (@brotkasttv) November 16, 2026
„Ég bara trúi á gagnsæi og upplýsingar,“ sagði hún og nefndi að gögn um heimilisofbeldi og eltihrella hefðu sýnt að þolendur nytu ekki nægrar verndar. Þau gögn hefðu nýst við gerð frumvarps um úrræði á borð við nálgunarbann og ökklabönd.
Vill að tölurnar séu settar í samhengi
Þorbjörg sagði umræðu um tölur eftir þjóðerni viðkvæma og að hætta væri á að fólk leitaði eingöngu að upplýsingum sem styddu fyrirfram mótaða skoðun. Skýrari gögn gætu líka dregið úr því að innflytjendur sem einn hópur sættu sleggjudómum.
Hún tók atvinnuþátttöku fólks frá Úkraínu sem dæmi um hvers vegna samhengið skipti máli. Þegar tölurnar væru túlkaðar þyrfti að hafa í huga að fólkið hefði flúið stríð og að tungumálaörðugleikar gætu haft áhrif á möguleika þess til að fá vinnu.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu við Þorbjörgu Sigríði í spilaranum hér að neðan.