Frá og með deginum í dag er óleyfilegt að eiga eða geyma „ómannað flugfar“ í Beijing, höfuðborg Kína. Líka er bannað að flytja dróna eða íhluti í þá innan borgarmarkanna. Þeim íbúum sem áttu dróna fyrir var gert að farga þeim eða selja á vottuðum sölustöðum.
Bannið nær bæði til þéttbýlis og dreifbýlis á stórhöfuðborgarsvæðinu en það spannar um 16.400 ferkílómetra. Það er svæði sem er á stærð við hálfa Belgíu.
Í Beijing eru aðalstarfsstöðvar kínverskra stjórnvalda og höfuðstöðvar Kommúnistaflokksins. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu finna reglulega fyrir því að hert sé á öryggiskröfum.
Varðar sekt og tækið gert upptækt
Í maí bönnuðu stjórnvöld sölu dróna í Beijing en þeir sem áttu slík tæki fyrir máttu halda þeim ef þeir skráðu þau hjá hinu opinbera.
Í júní jukust hins vegar áhyggjur af öryggi í loftrými borgarinnar þegar lítil rella flaug inn í hæsta skýjakljúf hennar með þeim afleiðingum að flugstjórinn lést og þrettán slösuðust. Því var ákveðið að herða bannið enn frekar.
Íbúar Beijing sem enn þá eru með dróna undir höndum frá og með deginum í dag geta átt von á sekt og að búnaðurinn verði gerður upptækur ef upp um þá kemst.