Hreppurinn greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sömuleiðis myndir af umfangi skriðunnar sem þveraði veginn.
„Það er áfram mikil rigning í veðurkortunum svo það er ekki öruggt ferðaveður inn og út úr sveitinni. Fylgist vel með á vef Vegagerðarinnar ef þið hyggið á ferðalög,“ segir þar.
Gul viðvörun er í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra vegna mikillar rigningar. Veðurstofa varar við auknu afrennsli og vatnavöxtum sem geti aukið hættu á flóðum og skriðuföllum.