Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af vettvangi. Engin slys hafi orðið á fólki.
Bálhvasst var víða á landinu í gær og rúta með fjörutíu skólabörnum um borð fór út af veginum á Fagradal í gærmorgun. Að sögn Ásmundar var ekki meira um óhöpp vegna veðursins á Vesturlandi í gær.