Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakanna og heilbrigðisþjónustunnar staðfesta að stjórn samtakanna hafi haft of mikil afskipti af heilbrigðisþjónustunni.
„Þetta er viðurkenning á því að þau í félagastjórninni voru of nærri heilbrigðisþjónustunni,“ segir hún.
Valgerður sagði nýlega starfi sínu lausu og lýsti afskiptum stjórnar af faglegu starfi heilbrigðisþjónustunnar sem óeðlilegum.
Sjúkratryggingar og SÁÁ ætla að endurskoða þjónustusamning sín á milli vegna mikillar ólgu innan samtakanna. Til umræðu er að skipa þriggja til fimm manna stjórn til að vera yfir heilbrigðisþjónustu samtakanna og tryggja fagleg gæði.
Starfsmenn sem fréttastofa hefur rætt við segja breytinguna skref í rétta átt en að hún nægi ekki til að endurbyggja traust.
Valgerði finnst breytingin á samningnum við Sjúkratryggingar vera stórt skref og einkum jákvætt til framtíðar. „Ég er fegin að það sé búið að taka þetta skref og viðurkenna hvað þessi mörk voru óeðlileg,“ segir hún.
Hún er þó ekki viss um að þetta nægi til að lagfæra ástandið innan SÁÁ. Að hennar mati þyrfti að ráða Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra SÁÁ, aftur til starfa til að endurbyggja traust meðal starfsfólks.
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir var nýverið ráðin í starf Ragnheiðar Huldu.
Starfsmenn SÁÁ sem vilja stöðu sinnar vegna ekki koma fram undir nafni segja löngu tímabært að heilbrigðisþjónusta SÁÁ verði sett undir faglega stjórn.
Þeir taka undir að það sé gott til framtíðar að stjórn samtakanna geti ekki haft afskipti af faglegu starfi.
Starfsmennirnir segja stöðuna innan samtakanna þó enn slæma. Þeir telja breytingarnar ekki nægja einar og sér til að skapa sátt og endurvekja traust.
Þeir gagnrýna enn fremur að SÁÁ hafi ákveðið að halda sig við nýráðinn forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga.