RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV má fækka útvarpsstöðvum verði ný drög að frumvarpi um RÚV samþykkt. Þá er stefnt á að RÚV dragi úr vægi sínu á auglýsingamarkaði um 10 prósent.
Nýtt frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um RÚV hefur verið birt í samráðsgátt, en samkvæmt frumvarpinu verður RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum kjósi það svo.
Segir í nánari skýringum að felldar verði brott úr 3. grein laganna kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land. Með breytingunni verður stjórn RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum. Ekki er talið nauðsynlegt eða æskilegt að fjöldi rása Ríkisútvarpsins sé sérstaklega tilgreindur í lögum eins og þar segir.
Fjallað hefur verið um aðrar breytingar sem finna má í frumvarpinu, svo sem að tekjur RÚV af útvarpsgjaldi verði skertar um fjárhæð sem nemur 10% af auglýsingatekjum RÚV á ári hverju. Er þetta gert til þess að minnka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði.
Hægt er að rita umsagnir við frumvarpið á vef samráðsgáttarinnar, en engin slík hefur borist þegar þetta er skrifað.
Á vef stjórnarráðsins segir að frumvarpsdrögin séu …