Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur forseta Íslands en hún er jafnframt verndari verkefnisins.
Tímabært að setja samtalið og frið á dagskrá
Halla hefur nú þegar sent bréf á framhaldsskólanemendur þar sem hún býður þeim til samtals. Tilefnið er 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða og því tímabært að mati forseta að setja samtal og frið á dagskrá, að horfa saman fram á veginn.
Framhaldsskólarnir verða lykilvettvangur samtalsins en yngri og eldri kynslóðum verður boðin þátttaka til að skapa raunverulegt samtal kynslóða.
Leita að framhaldsskólanemum um allt land
Skráning fer fram á talasaman.is en þar er að finna allar upplýsingar um laugardaginn 10. október þegar samtalið fer fram.
Leitað er að framhaldsskólanemendum um allt land til að taka þátt en einnig að gefa kost á sér sem lóðsar samtalsins í sínum skólum, en lóðsar leiða samtalið við hvert borð á samtalsdegi. Spurningin sem rædd er - Hvernig samfélag viljum við skapa saman? - er rauður þráður og hugmyndir og sjónarmið sem fram koma verða dregin saman.
Gervigreindin verður síðan nýtt til góðs til að deila samtalinu með þjóðinni.