Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma að verkefninu. Níu íslenskir leikarar fara með hlutverk í þáttunum.
Colman Domingo spókaði sig í miðborginni
Samkvæmt heimildum fréttastofu voru tökur í verslun Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tökulið hefur einnig verið í miðborg Reykjavíkur.
Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og verið vel tekið af gagnrýnendum. Þeir eru úr smiðju Tinu Fey, sem fer einnig með eitt aðalhlutverkið.
Þættirnir fjalla um vinahjón sem fara reglulega saman í ferðalög og hvernig líf þeirra tekur breytingum í gegnum þau. Auk Fay fara Domingo Colman, Steve Carrell, Will Forte, Erika Henningsen og Marco Calvani með aðalhlutverk í þáttunum.
Colman Domingo, einn aðalleikari þáttanna, heimsótti verslunina Kirsuberjatréð í miðborg Reykjavíkur í vikunni. Domingo hefur verið einn vinsælasti leikarinn í Hollywood síðustu ár.
Hann er þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Euphoria og Fear The Walking Dead og kvikmyndum eins og Lincoln, Selma og The Color Purple. Domingo var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir aðalleik í myndinni Rustin 2024 og Sing Sing 2025.
Níu íslenskir leikarar og tökur á Íslandi í 10 daga
Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóri True North, segir þættina verða í tökum hér á landi í 10 daga. Universal tekur þátt í framleiðslu þáttanna ásamt Netflix. Leifur segir flesta aðalleikarana stadda hér á landi og að þættirnir séu að mestu myndaðir í Reykjavík.
„Helstu kennileiti Reykjavíkur fá að njóta sín í þáttunum.“
Leifur segir lykilmannskap koma að utan og síðan komi starfsfólk True North inn í verkefnið.
„Yfir tökutímabilið eru 500 aukaleikarar. Það eru 145 manns á vegum True North. Þetta er mjög fínt að því leytinu til.“
Verkefnið sé meðalstórt en Reykjavík og Ísland fái mikla landkynningu.
„Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu. Ísland er skrifað inn í þáttinn. Það er gaman þegar Reykjavík fær að njóta sín. Í 90 prósent tilfella er þetta úti á landi. Náttúran hefur alltaf verið okkar stærsta söluvara.“
Níu íslenskir leikarar fara með hlutverk í þáttunum. „Þetta er fínt verkefni, þannig að það er bara frábært.“
Leifur segir True North hafa átt gott samband við Netflix. Fyrsta serían sem True North vann að fyrir Netflix var Sense8 árið 2013.
„Við erum búin að eiga ansi öfluga sögu með Netflix og vera í mjög góðu sambandi.“
Nokkur verkefni eru í skoðun fyrir veturinn og ef allt gengur eftir gætu þau verið tekin upp í vetur.
„Maður bara krossar putta. Það er ekki fyrr en kameran fer að rúlla á setti sem maður verður rólegur.“
Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við Leif B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóra True North.