Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu
Kviðdómur í Nýju-Mexíkó komst að þeirri niðurstöðu að Meta hefði gefið notendum villandi upplýsingar um persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga. Ríkið krefst sekta sem gætu numið milljörðum dala.
Kviðdómur í Nýju-Mexíkó komst í dag að þeirri niðurstöðu að Meta, móðurfélag Facebook, hefði blekkt notendur um persónuvernd. Málið tengist Cambridge Analytica-hneykslinu, að því er bandarískir fjölmiðlar greina frá.
Cambridge Analytica var pólitískt ráðgjafarfyrirtæki sem reyndist hafa aflað persónuupplýsinga milljóna Facebook-notenda með óeðlilegum hætti til að beina pólitískum auglýsingum að þeim, einkum í tengslum við forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016 og þjóðaratkvæðagreiðsluna um Brexit.
Uppljóstranir á sínum tíma leiddu í ljós að fyrirtækið keypti gögn sem safnað hafði verið með persónuleikaprófsforriti sem nefndist „thisisyourdigitallife“. Um 270 þúsund manns notuðu forritið, sem jafnframt fékk aðgang að upplýsingum um vini þeirra.
Með þeim hætti náði gagnasöfnunin að lokum til um 87 milljóna Facebook-notenda um allan heim.
Facebook vissi í desember 2015 að Cambridge Analytica hefði keypt gögnin en greindi ekki frá því fyrr en í apríl 2018, eftir að uppljóstrari steig fram. Í kjölfarið braust út umfangsmikið pólitískt hneyksli.
Niðurstaða kviðdómsins …