Allar líkur eru á að hækkun krónutölugjalda um áramót verði minni en fjárlögin kveða á um. Seðlabankastjóri vill að það nái yfir allan opinbera geirann.
Ánægður með aðhaldsstigið
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, er almennt ánægður með aðhaldsstigið í fjárlagafrumvarpinu, sem gerir ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með 5 milljarða króna afgangi.
„Það er svo annað mál hvernig gengur að koma markmiðinu áfram en þetta er samt eitthvað sem hægt er að miða við,“ segir Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.
Það er þó eitt og annað sem Seðlabankinn er síður ánægður með. Til að mynda hækkun bankaskatts sem Seðlabankinn leggst gegn. Síðan er hækkun krónutölugjalda upp á 5,2 prósent.
„Við hefðum gjarnan viljað að gjaldhækkanir fylgdu verðbólgumarkmiðinu okkar, sem er 2,5 prósent. Við myndum gjarnan vilja að allur opinberi geirinn fylgdi markmiði okkar og hækkaði gjaldskrárnar ekki meira en 2,5 prósent.“
Seðlabankastjóra verði líklega að ósk sinni
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra segir að líklega verði seðlabankastjóra að ósk sinni.
„Það hefur legið á borðinu að þetta er hluti af því sem við höfum verið að ræða við verkalýðshreyfinguna. Það er auðvitað borð fyrir báru og þarna gætum við stigið einhver skref,“ segir Daði Már.
„Ef það verður niðurstaða, sem ég bind miklar vonir við, þá myndum við örugglega hafa þetta sem hluta af því.“