Kæra hefur verið lögð fram til atvinnuvegaráðuneytisins vegna ákvörðunar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunar yfir merkingum á Swiss Miss kakódufti sem heildsalan Innnes flytur inn til landsins. Segir kærandinn merkingarnar villandi og gefi til kynna að um súkkulaði sé að ræða en ekki kakó.Kæran kemur reyndar frá dönskum lögfræðingi en óljóst er hvers vegna viðkomandi er að kæra merkingarnar til íslenskra yfirvalda en DV er ekki kunnugt um og ekki finnast upplýsingar um að Innnes sé með starfsemi í Danmörku.
Dani sættir sig ekki við að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ætli ekkert að gera vegna „villandi“ merkinga á Swiss Miss