Umboðsmaður barna segir stöðuna á biðlistum barna víða hafa versnað. Þúsundir bíði mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu, meðferð og þjónustu. Meðalbiðtími hjá Geðheilsumiðstöð barna eftir einhverfugreiningu er kominn yfir þrjú ár.
870 bíða eftir athugun vegna gruns um einhverfu
Um 2700 börn bíða eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna og hefur þeim fjölgað um rúmlega 250 á síðustu sex mánuðum. Stór hluti þeirra, eða tæplega 2600 börn, hefur beðið lengur en í þrjá mánuði.
Þetta kemur fram í nýrri tölfræði Umboðsmanns barna um bið barna eftir þjónustu.
Alls bíða 1838 börn eftir athugun vegna gruns um ADHD, með eða án einhverfu, og er meðalbiðtíminn 30,7 mánuðir, eða rúmlega tvö og hálft ár.
Lengur þarf að bíða eftir athugun vegna gruns um einhverfu. Meðalbiðtíminn þar er 38,3 mánuðir, eða þrjú ár og tveir mánuðir. Tæplega 870 börn eru á biðlista.
Staðan versnað hjá BUGL
Hjá göngudeild Barna- og unglingageðdeildar hefur staðan einnig versnað. Fjörutíu og tvö börn bíða eftir þjónustu og hefur þrjátíu og eitt barn beðið lengur en þrjá mánuði. Það er töluverð aukning frá því í febrúar, þegar ekkert barn þurfti að bíða lengur en í þrjá mánuði.
Þá bíða 206 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands og 165 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði. Þetta er töluverð aukning frá því fyrir hálfu ári. Þá voru 135 börn á biðlista eftir þjónustu og höfðu 87 þeirra beðið lengur en í þrjá mánuði.
„Þúsundir bíða mánuðum eða jafnvel árum saman“
„Nýjustu tölur sýna að staðan hefur víða versnað og að þúsundir barna bíða mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu, meðferð og þjónustu,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.
Þrátt fyrir talsverða umræðu síðustu misseri og fyrirheit stjórnvalda hafi ekki tekist að stytta bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu.
„Á meðan börn bíða mánuðum og jafnvel árum saman getur vandi þeirra aukist og tækifæri til snemmtækrar íhlutunar glatast,“ segir Salvör. Slíkt sé ótækt.
Salvör skorar á stjórnvöld að setja í forgang að stytta bið barna og tryggja að börn fái þá þjónustu sem þau þarfnast — þegar þau þurfa á henni að halda.
Börn með stöðu brotaþola eða sakbornings í ofbeldismálum fjölgað
Í tölfræði umboðsmanns barna kemur einnig fram staða barna í kynferðis- og ofbeldisbrotamálum síðustu sex mánuði.
Ellefu börn höfðu stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli á fyrstu sex mánuðum ársins og 103 börn stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamáli. Á sama tímabili höfðu 44 börn stöðu brotaþola í kynferðisbrotamáli og 137 stöðu brotaþola í ofbeldisbrotamáli.
„Það er mikið áhyggjuefni hversu mikil aukning hefur orðið á því að börn hafi stöðu sakbornings eða brotaþola í ofbeldismálum,“ segir Salvör.
Hún segir þessa þróun alvarlega og mikilvægt sé að stjórnvöld greini hvaða orsakir liggja til grundvallar þessari aukningu til þess að hægt sé að grípa til viðeigandi mótvægisaðgerða.