Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík voru kynntar í vikunni. Búið er að meta fjölmarga þætti sem þurfa að vera fyrir hendi til að gæta öryggis í bænum og búið að virkja flesta þeirra. Hættumat Veðurstofunnar í þessu áhættumati er hins vegar lítið breytt frá því sem verið hefur.
Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir að öruggt sé að vera í Grindavík, „að tilteknum mótvægisaðgerðum og öryggisaðgerðum, maður getur kallað þetta það.“
Páli Einarssyni, fyrrverandi prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ og mest reynda jarðeðlisfræðingi landsins með áratuga reynslu af eldgosum, brá nokkuð við að heyra þetta.
„Það er fullyrt að Grindavík sé eins og aðrir staðir á landinu þar sem er viðvarandi náttúruvá. Þessi samanburður við Grindavík á ekki við nema fram til ársins 2020 og eftir það hefur Grindavík verið í viðbragðsstöðu. Aðrir staðir með náttúruvá eru það ekki.“
Hann segir ekki hægt að útiloka að það geti gosið innan bæjarmarka Grindavíkur, eins og fram komi í hættumati Veðurstofunnar.
„Þarna er skautað ansi frjálslega yfir það hvað vísindin geta“
Páll segist ekki búinn að lúslesa greinargerðina en segist hvergi hafa séð minnst á að það geti verið vafi á því að Veðurstofan gefi út viðvörun. Hann segir að reiknað sé með því að Veðurstofan geti alltaf gefið út viðvörun á undan eldgosum.
„Það er engan veginn þannig að það sé hægt að ganga að því vísu að það sé hægt að gefa út viðvörun á undan eldgosum,“ segir Páll. „Þarna er skautað ansi frjálslega yfir það hvað vísindin geta. Það er kannski ekki það allra líklegasta en við getum staðið frammi fyrir því að það bresti á með eldgosi.“
Í áhættumati sem verkfræðistofan Örugg gerði fyrir Grindavíkurnefnd í mars var mælst gegn skólahaldi. Böðvar Tómasson, framkvæmdastjóri Örugg, segir gott að í nýja áhættumatinu sé búið að gera lista yfir aðgerðir sem þarf að ráðast í en að hann hafi einna mestar áhyggjur af öryggi barna.
„Ég hefði viljað gera ítarlegri greiningar fyrst áður en þessar ákvarðanir voru teknar.“
„Ef þú ert með börn án eftirlits í bænum þar sem þú veist ekkert hvar þau eru, þá er auðvitað mikil óvissa í því hvernig tekst til með að rýma. Þessa óvissu finnst mér að þurfi að vera meira í að meta þannig að við tökum öruggari skref heldur en hraðari skref,“ segir Böðvar.