Valsmenn heiðruðu í dag Risto Izev, húsvörð á Hlíðarenda, sem varð sextugur í síðasta mánuði. Margir foreldrar segja hann hálfgert hjarta Valsheimilisins.
Risto hefur staðið vaktina í sjoppunni á Hlíðarenda síðan 2014. Í tilefni af stórafmælinu tóku Valsmenn sig saman og söfnuðu fyrir afmælisgjöf sem þeir færðu honum í dag.
Risto segir að það sé mjög gaman að vinna í Val. „Ég er bara mjög ánægður hérna, ég er alltaf allan daginn hérna,“ segir hann. Hann segir afar gaman að vinna með krökkunum. Ungir Valsmenn tóku undir.
Einn þeirra rifjaði upp að Risto hefði meðal annars hjálpað honum þegar hann týndi samlokukortinu sínu og takkasímanum. „Hann er bara mjög skemmtilegur og alltaf að hjálpa bara og mér finnst gaman að hafa hann hérna,“ sagði annar.