Í sumar hefur starfsfólk Náttúrustofa landshlutanna talið fugla og hagamýs, ásamt að vakta líf í ferskvatni og sjó. Forstöðumaður Náttúrustofu segir mikilvægt að fylgjast með breytingum á lífríkinu á tímum loftslagsbreytinga.
„Við erum í fuglavöktun og úttektum. Svo erum við í gróður og vistkerfaúttektum og vöktunum. Við erum að skoða ástand ferskvatns og botndýra í sjó og fjöru,“ segir Hulda Birna Albertsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða.
Flest gagnasöfnunarverkefnin fara fram yfir sumarið. Á veturna, þegar mikið af lífríkinu er í dvala er unnið úr gögnum.
Hulda Birna heldur áfram: „Það er náttúrlega ekki hægt að meta ástandið á einni úttekt þannig að þetta verður náttúrlega að vera langtímavöktun til að fylgjast með breytingum, sérstaklega núna á tímum loftslagsbreytinga.“