Sex er saknað eftir að íbúðarhús hrundi vegna sprengingar í Aþenu á Grikklandi í dag. Talið er að gasleki hafi orsakað sprenginguna. Borgarstjóri Aþenu, Haris Doukas, sagði sprenginguna vera skelfilegan atburð.
Húsið var tveggja hæða og stóð við litla götu nærri Akrapolisarhæðinni í Plaka-hverfinu sem er eitt helsta ferðamannahverfi borgarinnar. Breti og grísk kona bjuggu á annarri hæð hússins og fjórir bandarískir ferðamenn voru í íbúð í skammtímaleigu í húsinu.
Nærliggjandi byggingar skemmdust einnig í sprengingunni og verið er að meta hvort þær þurfi að rífa.
Leitin að fólkinu stendur enn yfir.