Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn – það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi – verður lagt á frá og með 1. maí á næsta ári
Nýja gjaldið leggst aðeins á þá sem ekki eru með skattalega heimilisfesti hér á landi og eru 18 ára eða eldri.
Frá 1. júní til októberloka verður gjaldið 4.500 krónur en annars 3.000 krónur. Með þessu á að afla ríkissjóði tekna upp á um 6,7 milljarða króna á ári og gert er ráð fyrir að tekjurnar verði 5 milljarðar á næsta ári.
Um leið mun Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hætta að rukka fyrir bílastæði en þar hefur kostað um 1.000 krónur að leggja einkabílum – í staðinn á þjóðgarðurinn að fá þá upphæð sem hann hefur rukkað fyrir bílastæði úr ríkissjóði.
Þetta kemur fram í drögum að frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem var birt í samráðsgátt í vikunni.
Galin verðlagning og galinn skattur
Birni Ragnarssyni, forstjóra Icelandia, sem býður upp á rútuferðir um Gullna hringinn, líst mjög illa á þessa gjaldtöku, sérstaklega vegna þess hversu gjaldið er hátt. Í dag kosti ferð um Gullna hringinn með félaginu um 12–13.000 krónur þannig að gjaldið muni hækka kostnaðinn við slíka ferð um 40%. Hann hafi reiknað með að gjaldið yrði í kringum 1.000–1.500 krónur en ekki 4.500 krónur.
Ef ferðamenn ætli að skoða aðrar náttúruperlur í eigu ríkisins bætist bílastæðagjald á þeim stöðum við. „Þetta er galin verðlagning og galinn skattur í því árferði sem við erum í núna,“ segir Björn.
Verð á rútuferðum ekki haldið í við laun og verðlag
Björn segir að afkoman af rútuferðum um Gullna hringinn hafi alls ekki verið góð. Töluverð samkeppni sé á þessum markaði, um tugur fyrirtækja bjóði þar upp á ferðir og ekki hafi verið hægt að velta hærri kostnaði út í verðlagið.
Á síðustu tíu árum hafi verð fyrir ferð um Gullna hringinn hækkað um 30%. Á sama tíma hafi verðlag hækkað um 50% og laun næstum því tvöfaldast.
Björn telur að gjaldtakan geti leitt til þess að færri komi í ferðirnar og velji heldur aðra áfangastaði sem eru í eigu einkaaðila, til dæmis á Suðurströndinni. Þá verði þetta ekki til að bæta samkeppnisstöðu Íslands gagnvart öðrum löndum, sem hafi farið versnandi.
Ferðaþjónustan sé í viðkvæmri stöðu og hann sé mjög hissa á framkomu gagnvart þessari stærstu atvinnugrein landsins.
Borgi neysluskatta en taki ekki þátt í langtímauppbyggingu
Í frumvarpinu segir að markmiðið með gjaldtökunni sé að tryggja sanngjarna þátttöku ferðamanna í fjármögnun, uppbyggingu og viðhaldi innviða og ferðamannastaða, rannsóknum og markaðssetningu.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa bent á að ferðaþjónustan skili nú þegar um 200 milljörðum króna í skatta á ári.
Við spurðum Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra hvort þessir 200 milljarðar dygðu ekki til.
Hanna Katrín minnti á að stjórnvöld hefðu lengi haft það á sínu borði að leggja á gjald sem myndi tryggja að þeir ferðamenn sem hingað koma legðu sitt af mörkum þegar þeir heimsækja íslenskar náttúruperlur.
Þeir borgi vissulega neysluskatta hér á landi, en taki ekki þátt í langtímauppbyggingu innviða. Náttúruperlurnar séu helsta aðdráttaraflið fyrir erlenda ferðamenn og gæta þurfi að því að innviðir séu nægilega góðir til að anna aukinni umferð ferðamanna.
Rennur líka til samgöngukerfisins
Ferðaþjónustan eigi að njóta góðs af gjaldtökunni. Fjármunirnir munu renna til rannsókna á ferðaþjónustu og tryggja að markaðssetning verði viðvarandi en ekki byggð upp með átaksverkefnum.
Þá renni þeir til uppbyggingar innviða við náttúruperlur í eigu ríkisins um allt land. „En í stóru myndinni erum við líka að tala um samgöngukerfið okkar og annað slíkt,“ segir hún.
Samkvæmt lögum um opinber fjármál renna skattar ríkisins beint í ríkissjóð – en Hanna Katrín segir að fjárframlögin til þeirra verkefna sem hún nefndi verði tryggð með samningum, sem ekki verði hægt að gera fyrr en frumvarpið verði orðið að lögum.
Eftir að koma í ljós hversu mikið fer í innviði við náttúruperlur
Aðspurð segir Hanna Katrín að ekki sé búið að ákveða hversu hátt hlutfall af gjaldtökunni fari til uppbyggingar á innviðum við ferðamannastaði. Miklu hærri fjárhæð en sem nemur gjaldtökunni renni í innviðappbyggingu en að nú sé verið að tryggja að hluti fjármagnsins komi frá erlendum ferðamönnum.
Í frumvarpinu segir að val á þessum þremur stöðum – Þingvöllum, Gullfossi og Geysi, styðji við markmið um álagsstýringu og dreifingu ferðamanna.
Hanna Katrín segir þó að ekki sé reiknað með að álagið á þessa staði minnki. Fjármagnið sem skilar sér í ríkissjóð verði nýtt í að markaðssetja hin svokölluðu kaldari svæði og að árstíðarsveiflur jafnist út eins og kostur er. Þá verði rannsóknir efldar.
60.000 króna sekt fyrir að vera ekki með skírteini
Þau sem borga gjaldið fá aðgangsskírteini. Í frumvarpinu segir að einstaklingur sem ekki er með skírteinið þegar hann mætir á staðinn skuli borga sekt að fjárhæð 60.000 krónur – sem reyndar má lækka niður í 20.000 krónur með því að borga á staðnum.
Ferðamálastofu hefur verið falið að annast útfærsluna og líka eftirlit á þessum stöðum en þar á bæ fengust þau svör að sú vinna væri ekki byrjuð. Hanna Katrín segir að til standi að skírteinið verði rafrænt og hægt verði að geyma það í símanum i eins og við var að búast svo sem.
Þau sem greiða skattana sína hér, eru hér með skattalega heimilisfesti, þurfa á hinn bóginn ekki að greiða gjaldið. En miðað við frumvarpið þurfa allir að framvísa skírteini við komuna á gjaldskyldu svæðin.
Skattborgarar þurfa líklega ekki að hafa áhyggjur af sektum
Gleymi íslenskur skattborgari skírteininu sínu á hann þó ekki endilega von á sekt.
„Mér finnst býsna ólíklegt að það verði farið út í það, ef fólk er með skilríki,“ segir Hanna Katrín. Víða erlendis þekkjast dæmi þess að skattgreiðendur séu undanþegnir gjaldi sem þessu.
Spurð um áhrifin á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu segist Hanna Katrín hafa miklu meiri áhyggjur af almennri dýrtíð hér á landi, matarverði og öðru slíku – þar kreppi skórinn og ferðamönnum þyki Ísland dýrt.
Hvað varði álagningu gjalda á erlenda ferðamenn fyrir það sem þeir nýti og skoði þá sé gjaldtakan hófleg miðað við okkar helstu samkeppnislönd.
Vel sé fylgst með viðhorfum ferðamanna og það verði áfram gert.
Byrjað að rukka fyrir bílastæði við Gullfoss í vikunni
Frumvarpið hefur ekki áhrif á innheimtu bílastæðagjalda við Geysi og Gullfoss því stæðin eru í eigu einkaaðila. Aðdráttaraflið – Geysir og Gullfoss – er á hinn bóginn í eigu ríkisins.
Lengi hefur verið rukkað við Geysi og þar hefur verið samið um að Náttúruverndarstofnun fái hluta af bílastæðagjaldinu – og fær stofnunin 20 milljónir á ári vegna þess. Til samanburðar fær Þingvallaþjóðgarður um 350 milljónir í tekjur á ári af sínum bílastæðum. Tekjur ríkisins vegna bílastæðanna við Skaftafell og Jökulsárlón verða líklega um 450 milljónir í ár.
Byrjað var að rukka bílastæðagjöld við Gullfoss fyrr í þessari viku en fram að því hafði ekki kostað að leggja þar.
Bílastæðagjaldið við Geysi er um 1.200 krónur fyrir einkabíl og það er jafnhátt við Gullfoss. Erlendur ferðamaður sem fer Gullna hringinn að sumarlagi greiðir því 6.900 krónur til ríkisins og í bílastæðagjöld.