„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir

„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir

„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir

Fyrsta rauða flaggið

Fjölskyldan hafði flutt til Stykkishólms og bjó tímabundið í húsnæði á vegum bæjarins þegar húsið var afhent haustið 2023. Rannveig vann skammt frá og fylgdist með húsinu dagana fyrir afhendingu. Henni fannst lítið benda til þess að verið væri að tæma það. Sú tilfinning reyndist rétt.

„Ég gat séð út um gluggann og fylgdist með hvort hann væri að tæma. Bíllinn hans var þarna en það var ekki eins og verið væri að tæma húsið. Svo hittum við hann fyrir utan, hann rétti mér lyklana og keyrði í burtu. Þegar við komum inn hugsaði ég strax að þetta væri ekki eðlilegt. Þetta var fyrsta rauða flaggið.“

Húsið hafði áður verið nýtt sem gistiheimili og samið hafði verið um að hluti búnaðarins mætti vera eftir. Eftir stóð þó mun meira en fjölskyldan hafði gert ráð fyrir, meðal annars föt, lyf, ónýt tæki og útrunninn matur.

Skömmu síðar komu, samkvæmt frásögn Rannveigar, alvarlegri vandamál í ljós. Hitaveiturör milli hæða hafði sprungið og mygla var í gólfi og listum. Loka þurfti fyrir heita vatnið, þurrka húsið og endurnýja hitakerfið. Síðar kom í ljós að frárennsli frá salerni og sturtu á neðri hæð var einnig í ólagi.

Eitt sérkennilegasta dæmið kom upp þegar fjölskyldan ætlaði að fjarlægja rúm á efri hæðinni. Rúmið sat fast og þurfti kúbein til að losa það. Þá kom í ljós að rúmfótur hafði steypst fast eftir eldri viðgerð.

Rannveig segir ýmislegt hafa verið skilið eftir í eigninni, meðal annars lyf, snyrtivörur og annan búnað sem fjölskyldan hafði ekki gert ráð fyrir að taka við.Aðsend

Gátu ekki beðið eftir matsmanni

Fjölskyldan þurfti að komast inn í húsið og hafði því ekki þann kost að láta skemmdir standa óhreyfðar um óákveðinn tíma. Maður Rannveigar tók orlofið sitt í framkvæmdir og vann áfram í húsinu á kvöldin. Iðnaðarmenn voru kallaðir til og ákveðið var meðal annars að leggja gólfhita í stað gamla hitakerfisins. Þau fluttu inn áður en öllum framkvæmdum var lokið.

„Dóttir okkar svaf í sólskálanum og ég svaf í stofunni með yngsta son okkar. Maðurinn minn svaf uppi á skrifstofu sinni. Þetta var svona í marga mánuði. Þegar eldri strákarnir komu um jólin sváfu þeir líka bara þar sem hægt var. Við þurftum einfaldlega að koma okkur inn í húsið.“

Þarna kom upp vandamál sem Rannveig telur lýsa vel stöðu kaupenda þegar gallar finnast eftir kaup. Fjölskyldan þurfti að laga húsið til að geta búið í því en eftir að viðgerðir höfðu farið fram varð erfiðara að fá hluta tjónsins metinn. Þau tóku myndir, héldu utan um reikninga og kölluðu til iðnaðarmenn. Það dugði þó ekki í öllum tilvikum þegar kom að mati.

Að sögn Rannveigar reyndust raka- og mygluvandamál umfangsmeiri en fjölskyldan hafði gert ráð fyrir við kaupin.Aðsend

„Ég skil alveg þegar matsmaður segir að hann geti ekki metið það sem hann sér ekki. En við vorum með myndir og iðnaðarmenn höfðu séð ástandið. Allir sögðu við okkur: „Takið myndir, takið nóg af myndum.“ Svo stendur maður eftir og veltir fyrir sér hvað maður hefði átt að gera öðruvísi. Við þurftum að gera við svo við gætum búið þarna.“

Haldið eftir lokagreiðslunni

Óháður matsmaður mat tjónið vegna gallanna upphaflega á tæpar fjórar milljónir króna. Þar sem búið var að gera við hluta skemmdanna var eftirstandandi tjón síðar metið á um 2,6 milljónir króna.

Fjölskyldan hafði haldið eftir um tveggja milljóna króna lokagreiðslu af kaupverðinu og samkomulag náðist um að hún félli niður. Eftir stóðu um 600 þúsund krónur samkvæmt matinu en seljandinn samþykkti ekki að greiða þá fjárhæð. Fjölskyldan ákvað að fara ekki í dómsmál vegna hennar þótt það sé skýrt að þessa upphæð hafi seljandi átt að endurgreiða þeim.

Ráðist þurfti í talsverðar framkvæmdir eftir að fjölskyldan tók við húsinu. Hér sést hluti veggjar og gólfs sem opnaður var vegna skemmda.Aðsend

Þar með var málið þó ekki búið. Afsalið var ekki undirritað og mánuðum saman gekk fjölskyldan eftir því að gengið yrði frá því. Að lokum hófst undirbúningur að málsókn. Þá kom fram ný krafa um lokagreiðsluna sem áður hafði verið samið um að félli niður. Sú krafa var stöðvuð en eftir frekara uppgjör greiddi fjölskyldan seljandanum um 350 þúsund krónur til viðbótar.

„Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér. Þú þarft matsmann, lögmann, iðnaðarmenn og skýrslur og átt að vita frá fyrsta degi nákvæmlega hvernig þú átt að bregðast við. Ef ekkert gengur þarftu að vera tilbúinn að fara fyrir dómstóla með allri þeirri áhættu sem því fylgir. Við vorum ekki uppiskroppa með rök eða gögn heldur vorum við að verða uppiskroppa með peninga, tíma og orku.“

Rannveig segir viðhaldi á gluggum og öðrum hlutum hússins hafa verið ábótavant. Fjölskyldan taldi sig hins vegar vera að kaupa eign sem samkvæmt sölugögnum var vel við haldið og í góðu ástandi.Aðsend

Sparnaðurinn tæmdist

Kostnaðurinn einskorðaðist ekki við gallana sjálfa. Sparnaður fjölskyldunnar fór í framkvæmdir og útgjöld tengd málinu og á meðan afsalið vantaði voru önnur fjárhagsmál áfram í biðstöðu.

Þetta hafði að sögn Rannveigar áhrif á daglegt líf fjölskyldunnar í nær þrjú ár. Þau héldu aftur af útgjöldum, leyfðu sér lítið eins, t.d. að fara í ferðalög. Stjúpsonur Ernu býr í Kaupmannahöfn en fjölskyldan ákvað meðal annars að sleppa ferð þangað meðan málið væri óleyst.

„Við vildum ekki auka nein fjárútlát á heimilinu í þessum aðstæðum. Við höfum í raun ekkert farið í frí, fyrir utan eina nótt í Borgarnesi í sumar. Við höfum bara verið hér og sett það sem við höfum getað í húsið. Mér finnst ofboðslega gott að vera hérna, þannig að það er ekki málið. En maður hefur ekkert þorað að leyfa sér neitt meðan þetta var allt óklárað.“

Afsalið fékkst loks undirritað í ágúst. Það var lögmaður fjölskyldunnar sem lét þau vita. Rannveig var ósátt við aðkomu fasteignasalans að málinu og taldi samskiptin hafa minnkað eftir því sem deilan dróst á langinn.

Vill að upplýsingar fylgi eigninni

Eftir tæplega þriggja ára ferli stendur eftir hjá Rannveigu að vandinn hafi ekki einungis falist í göllunum sjálfum heldur í því hversu litlar upplýsingar lágu fyrir þegar kaupin voru gerð og hversu erfitt reyndist að sækja rétt sinn eftir á.

Hún bendir á að mikilvægt sé að ástand fasteigna sé betur skjalfest áður en gengið er frá kaupum og að upplýsingarnar fylgi eigninni sjálfri. Eftir að hafa fylgst með ráðstefnu Matsmannafélags Íslands um fasteignaviðskipti, ástandsskoðanir og galla taldi hún margt þar endurspegla reynslu fjölskyldunnar.

Að hennar mati ættu skýrari og samræmdari reglur um ástandsskoðanir að gagnast bæði kaupendum og seljendum. Þá væri síður undir hverjum og einum komið að átta sig á göllum eða muna eftir atriðum sem kunna að hafa komið upp á árum áður.

„Það getur verið eitthvað bilað sem hefur aldrei truflað þig og þú ert einfaldlega búinn að gleyma því. Þá er ekki endilega verið að fela neitt. Með almennilegri ástandsskoðun liggur staðan bara fyrir. Þá veit kaupandinn hvað hann er að kaupa og seljandinn hvað hann er að selja. Ég sé ekki betur en að það sé hagur allra.“

Húsið í Stykkishólmi sem fjölskyldan keypti árið 2023. Þrátt fyrir nær þriggja ára deilu og umfangsmiklar framkvæmdir segir Rannveig að þau hefðu engu að síður viljað kaupa eignina.Aðsend

Rannveig telur ekki raunhæft að koma í veg fyrir allan ágreining í fasteignaviðskiptum. Markmiðið eigi frekar að vera að mikilvægar upplýsingar liggi fyrir áður en skrifað er undir og að skýrari úrræði séu til staðar ef alvarlegir gallar koma síðar í ljós.

Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið stendur afstaða Rannveigar til húsakaupanna sjálfra óbreytt.

„Við hefðum samt viljað kaupa húsið. Við hefðum bara viljað vita hvað við vorum að fara út í. Þá hefðum við vitað að frárennslið þyrfti stórviðgerð og vitað um lekann, hitaveitukerfið og klóakið. Við hefðum getað gert kostnaðaráætlun, boðið í eignina samkvæmt því og skipulagt búsetuúrræði á meðan.“

#dýrt #hafa #lýjandi #ótrúlega #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262939997d/-thad-er-otrulega-dyrt-og-lyjandi-ad-hafa-rett-fyrir-ser-

📰 Aðrar fréttir

Maðurinn sem vill ekki deyja: Hvetur fólk til að byrja á þessu fyrir heilsuna
📅 26.09.2026 👁️ 0
Maðurinn sem vill ekki deyja: Hvetur fólk til að byrja á þessu fyrir heilsuna
Bandaríski tæknifrumkvöðullinn Bryan Johnson, 49 ára, er þekktur fyrir að reyna að hægja á öldrun og lengja lífið með strangri heilsurútínu. Hann rann...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn
📅 26.09.2026 👁️ 0
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn
Það er vanvirðing við fólk sem hefur verið að vinna mikilvæg störf hjá hinu opinbera, t.d. í viðkvæmum umönnunar og endurhæfingarstörfum, þegar gerðar...
Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón annað kvöld vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða.Lokunin varir á frá klukkan 20 á sunnudagskvöld og til kl...
Svona vill Inga Sæland bregðast við PISA-niðurstöðunum – „Þetta er alvarleg afturför“
📅 26.09.2026 👁️ 0
Svona vill Inga Sæland bregðast við PISA-niðurstöðunum – „Þetta er alvarleg afturför“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, mun í vetur leggja fram endurskoðaða aðgerðaáætlun í menntamálum með skýrum markmiðum, ábyrgð og tímasettum...
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum
📅 26.09.2026 👁️ 0
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum
Lögreglan í Suður-Afríku fann í morgun lík konu austur af Jóhannesarborg, það tíunda á aðeins tveimur mánuðum. Örvænting og skelfing borgarbúa fer vax...
Vikulokin: Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
📅 26.09.2026 👁️ 0
Vikulokin: Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdast...
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur?
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur? Fréttin26. september 2026Erlent, GervigreindLeave a Comment Umræðan um gerv...
Galinn skattur eða sanngjörn þátttaka í kostnaði?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Galinn skattur eða sanngjörn þátttaka í kostnaði?
Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn – það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi – verður lagt á frá og með 1. maí ...
Sex ára stúlka setti heims­met - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Sex ára stúlka setti heims­met - Vísir
Keppnin virkar þannig að Yunzhi leysti kubbinn alls fimm sinnum og er síðan meðaltalið hennar tekið saman. Hún var að meðaltali 4,27 sekúndur að leysa...
„Börnin koma með sjálfið í poka“
📅 26.09.2026 👁️ 1
„Börnin koma með sjálfið í poka“
„Ég er að sjá núna nokkuð sem ég hef ekki séð áður. Börn sem eru kynsegin eða trans reyna í auknum mæli að falla inn í þetta venjulega unglingasamféla...
Auður segir sögu Kristínar systur sinnar sem var myrt 31 árs á heimili sínu: „Þetta tók á og hefur tekið drjúgan tíma“
📅 26.09.2026 👁️ 1
Auður segir sögu Kristínar systur sinnar sem var myrt 31 árs á heimili sínu: „Þetta tók á og hefur tekið drjúgan tíma“
„Mér finnst systir mín eiga það skilið að hennar rödd heyrist og gleymist ekki. Hún barðist alla tíð við að litið væri á hana og aðra fatlaða til jafn...
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
📅 26.09.2026 👁️ 0
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg Hjónin Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn KristjánssonHafa gengið í gegnum ýmislegt. Mynd: Go...
Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
Helstu leigjendasamtök á Spáni hafa hvatt stjórnvöld til þess að tækla þá húsnæðiskrísu sem landið stendur frammi fyrir með lagasetningu.Hávær mótmæli...
Angela Rayner criticises worker visa plans on eve of Labour conference
📅 26.09.2026 👁️ 1
Angela Rayner criticises worker visa plans on eve of Labour conference
The housing secretary says the government's plans to change wait times for permanent residency are unfair because they "change the goalposts".
Fá loksins að fagna aldarafmælinu - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Fá loksins að fagna aldarafmælinu - Vísir
Þyrlan lendir fyrir framan Hörpu klukkan eitt og má búast við smávægilegum umferðartöfum þegar þyrlan lendir. Biðlað er til vegfarenda að sýna tillits...
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín
📅 26.09.2026 👁️ 0
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín Fréttin26. september 2026ErlentLeave a Comment Vladímír Pútín, forseti Rússlands, 25. septem...
UPDATE: Passenger claimed bomb was in luggage before Jet2 plane evacuated at Tenerife South
📅 26.09.2026 👁️ 0
UPDATE: Passenger claimed bomb was in luggage before Jet2 plane evacuated at Tenerife South
Further details have emerged about the bomb scare which forced the evacuation of a Jet2 aircraft at Tenerife South Airport yesterday morning (Friday)....
Fury vs Joshua: Long-awaited all-British heavyweight fight could be off, says Tyson Fury
📅 26.09.2026 👁️ 1
Fury vs Joshua: Long-awaited all-British heavyweight fight could be off, says Tyson Fury
Tyson Fury says his long-awaited all-British heavyweight fight against Anthony Joshua in December is in jeopardy.
Hafi hafnað til­lögu Írana um opnum Hor­mússunds - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hafi hafnað til­lögu Írana um opnum Hor­mússunds - Vísir
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, greindi frá því í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að tillagan hefði verið afhent Bandaríkjamönnum ...
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhætta
📅 26.09.2026 👁️ 1
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhætta
Víðáttumikil lægð við norðausturströndina beinir norðlægri átt inn yfir norðvesturhluta landsins með talsverðri úrkomu. Vindur verður á bilinu 10–18 m...
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu
📅 26.09.2026 👁️ 2
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu Fréttin26. september 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Tugir þúsunda nemenda gengu út á gö...
Mörgum spurningum ósvarað í einu umtalaðasta morðmáli seinni tíma
📅 26.09.2026 👁️ 1
Mörgum spurningum ósvarað í einu umtalaðasta morðmáli seinni tíma
Þriðjudaginn 24. janúar 2023 var allt tiltækt lið lögreglu og sjúkraliða sent að Summer Street númer 47 í Duxbury, sem er sextán þúsund manna bær í Ma...
Ætlar að banna veðmál í íþróttum
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ætlar að banna veðmál í íþróttum
Forseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, tilkynnti í gær um bann við veðmálasíðum á netinu. Bannið nær til allra veðmála í íþróttum.Veðmálamarkaði...
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“
Þórarinn Stefánsson er framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum og finnst ákveðin mismunun í viðskiptum vera af hinu góða, aft...
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
📅 26.09.2026 👁️ 2
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist Wojciech Jarosz vann á Kefla­vík­ur­flug­velli en eft­ir ör­laga­ríkt frí í Karíbahaf­inu sæk­ir hann n...
Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni segir að þaulsetin og víðáttumikil lægð við norðaustanvert landið beini norðlægri átt yfir landið norðves...
Fluttur til að­hlynningar eftir um­ferðar­slys - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Fluttur til að­hlynningar eftir um­ferðar­slys - Vísir
Slysið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar fjögur sem þjónustar Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, segir í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu u...
Ætla að koma á samskiptavettvangi fyrir atvik sem tengjast gervigreind
📅 26.09.2026 👁️ 1
Ætla að koma á samskiptavettvangi fyrir atvik sem tengjast gervigreind
Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót samskiptavettvangi fyrir atvik sem upp koma tengd gervigreind. Hvíta húsið greindi frá þessu í gær.Fors...
New 478-room family resort opening in Corralejo in November
📅 26.09.2026 👁️ 1
New 478-room family resort opening in Corralejo in November
A new 478-room resort is preparing to open in Corralejo, Fuerteventura, on 1st November, bringing a substantial increase in accommodation capacity to ...
„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir
Hún hefur gengið í gegnum sorg og áföll en finnur fegurðina í þroskanum, leyfir sér að dreyma stórt án þess að það taki yfir og þegar öllu er á botnin...
Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir
Af fyrirsögnum frétta um yfirvofandi útrýmingu mannkyns hefur mátt ætla að söguþráður distópísku hasarmyndanna um Tortímandann, þar sem vélarnar öðlas...
Óttar Guðmundsson skrifar: Misvægi atkvæða á Alþingi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Óttar Guðmundsson skrifar: Misvægi atkvæða á Alþingi
Mynd Ísland var um aldir landbúnaðarland þar sem efnaðir bænd
Lokunin á Laugum og viðskipti með skreið til Nígeríu: „Þetta eru piparsúpur hjá þeim“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Lokunin á Laugum og viðskipti með skreið til Nígeríu: „Þetta eru piparsúpur hjá þeim“
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði verið lokað tímabundið. Þetta var efti...
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginni
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginni
Þriggja bíla árekstur varð í Reykjavík í gær eða nótt. Í dagbók lögreglunnar segir að óskað hafi verið eftir aðstoð vegna áreksturs þriggja bíla í umd...
Þurfa að hreinsa skólp betur
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þurfa að hreinsa skólp betur
Ráðast þarf í umfangsmiklar breytingar á fráveitukerfum og hreinsistöðvum á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok næsta árs til þess að uppfylla nýjar kröfur. ...
WEEKEND WEATHER: Still hot with light haze and strong winds after a wet Friday
📅 26.09.2026 👁️ 3
WEEKEND WEATHER: Still hot with light haze and strong winds after a wet Friday
The Canary Islands are heading into a cloudier and slightly cooler weekend, although the intense September heat has not disappeared completely and tem...
Disaster declared as heavy rains spark Bangkok flooding
📅 26.09.2026 👁️ 2
Disaster declared as heavy rains spark Bangkok flooding
Days of near continuous downpours have caused widespread flooding in the Thai capital.
Frétta­tía vikunnar: Kíró, tár og ræningja­renna - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Kíró, tár og ræningja­renna - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Rui Pinto: The hacker who tried to take down Manchester City
📅 26.09.2026 👁️ 3
Rui Pinto: The hacker who tried to take down Manchester City
BBC Sport travelled to Portugal to find out more about Rui Pinto - the computer hacker who sparked the Manchester City investigation.
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna
„Kraftmiklir krakkar” er verkefni á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem offita barna er aðalatriðið en tilgangur verkefnisins er að bregðast...
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóða
📅 26.09.2026 👁️ 3
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóða
Yfirvöld í Bangkok, höfuðborg Taílands, hafa lýst yfir hamfaraástandi í öllum 50 hverfum borgarinnar vegna úrkomu og flóða. Mikil úrkoma hefur verið í...
White House bars CNN from travelling with Trump on Air Force One
📅 26.09.2026 👁️ 3
White House bars CNN from travelling with Trump on Air Force One
CNN was scheduled to fly with US President Donald Trump for his trip to Tennessee on Saturday.
Burnham not doing enough to boost growth, says Starmer ally
📅 26.09.2026 👁️ 3
Burnham not doing enough to boost growth, says Starmer ally
Ex-Business Secretary Peter Kyle calls for more urgency on the economy, as Labour members head to the party's annual conference.
Andy Burnham not doing enough to boost growth, says former business secretary
📅 26.09.2026 👁️ 2
Andy Burnham not doing enough to boost growth, says former business secretary
Ex-Business Secretary Peter Kyle calls for more urgency on the economy, as Labour members head to the party's annual conference.
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekki
📅 26.09.2026 👁️ 3
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekki
Sérsveit ríkislögreglustjóra kom lögreglunni til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis á fimmtudag, eftir að tilkynnt var um man...
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds
Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að Íranar hafi boðið Bandaríkjamönnum tillögu sem gæti leitt til þess að Hormússund yrði opnað á ný inn...
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í Kyiv
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í Kyiv
Sjö voru drepnir og 46 særðust í árásum Rússa á Kyiv í dag. Árásirnar voru gerðar á samgönguinnviði, skrifstofubyggingu og 16 hæða blokk í borginni.Vo...
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph
📅 26.09.2026 👁️ 3
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph Fréttin26. september 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Hafiz T...
Íbúðarhús hrundi eftir sprengingu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Íbúðarhús hrundi eftir sprengingu
Sex er saknað eftir að íbúðarhús hrundi vegna sprengingar í Aþenu á Grikklandi í dag. Talið er að gasleki hafi orsakað sprenginguna. Borgarstjóri Aþen...
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu Fréttin26. september 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur að sögn hvatt Vladimi...