Ráðast þarf í umfangsmiklar breytingar á fráveitukerfum og hreinsistöðvum á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok næsta árs til þess að uppfylla nýjar kröfur. Mælingar benda til þess að skólp sé ekki nógu vel hreinsað.
Er þá stefnan að reyna að hreinsa út örplast, lyfjaleifar og allt sem hægt er? „Reglugerðin sem tók gildi núna síðustu áramót gerir kröfur um fyrsta þreps hreinsun sem er útfelling á seyru og einhver lækkun á þessum efnum sem þú ert að tala um en þetta er þá ekki fullhreinsun,“ segir Laufey Lilja Ágústsdóttir, fagstjóri vatnsmiðla hjá Veitum.
„Markmiðið er að draga úr álagi á viðtakann, á Faxaflóa, með því að lækka þessa mæliþætti sem við erum að byrja að vakta núna.“