Þórarinn Stefánsson er framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum og finnst ákveðin mismunun í viðskiptum vera af hinu góða, aftur á móti hrís honum hugur við því þegar fyrirtæki nota ýmis gögn um hann til að bjóða honum hærra verð en næsta manni.
Hann hefur mikla þekkingu á svokallaðri kvikri verðlagningu, því til dæmis að hækka verð á tónleikamiðum eftir eftirspurn eða hækka verð á ís þegar það er sól, en persónuleg verðlagning gengur skrefi lengra.
„Við erum að láta fullt af dýrmætum upplýsingum af því þær eru ekki svo dýrmætar í sjálfu sér fyrir okkur en þær eru rosalega dýrmætar þegar þær koma saman og það er ekki alltaf verið að nota þær okkur til heilla,“ segir Þórarinn.
Þórarinn Stefánsson ræddi þróun í persónulegri verðlagningu í hlaðvarpsþættinum Þetta nútímalíf.
Sá sem þekkir ekki kúnnann tapar
Það færist í aukana að fyrirtæki noti þúsundir gagnapunkta til þess að persónusníða verð, reikna út hvað kúnninn er tilbúinn að borga og bjóða honum það verð og næsta manni, sem er tilbúinn að borga minna eitthvert annað verð. Hugsunin er sú að með því að þekkja viðskiptavininn, eða setja hann í ákveðinn míkrómarkhóp, sé hægt að hámarka hagnað.
Fyrirtæki sem verðleggur vatnsbrúsa á 5000 krónur með því að huga að innkaupsverði og álagningu sem endurspeglar kostnað verslunarinnar tapar fyrir fyrirtæki sem aflar gagna og veit að ákveðinn viðskiptavinur er tilbúinn að borga 20 þúsund krónur fyrir brúsann.
Sum fyrirtæki bjóða þeim sem kaupa mest af einhverju sérkjör, til dæmis í gegnum vildaröpp. Þórarinn kaupir mikið af pylsum og væri til í að fá þær á tilboði.
„Mér finnst að það eigi að vera svoleiðis, pylsusalinn eða hver sem framleiðir steikta laukinn gefi mér eitthvað svo ég haldi tryggð við þeirra vörumerki, þannig á bisness að virka en þegar verið er að kreista út úr manni aukakrónur út á kauphegðun eða hugsun, það finnst mér hálfógeðfellt.“
Nánar er rætt við Þórarin í Þessu nútímalífi. Auk hans er rætt við Sesselíu Birgisdóttur, forstöðumann viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum og Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumann Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.