Helstu leigjendasamtök á Spáni hafa hvatt stjórnvöld til þess að tækla þá húsnæðiskrísu sem landið stendur frammi fyrir með lagasetningu.
Hávær mótmæli hafa brotist út víða um landið í vikunni í kjölfar þess að 87 ára gömul kona, Maricarmen Abascal, var borin út úr íbúð sinni í miðborg Madrídar vegna vangoldinnar leigu. Á átta árum hafði fasteignafélag keypt húsið sem íbúðin var í, rofið leiguþakið sem áður var á henni með því að finna glufu í lögunum og hækkað leiguna úr 500 evrum í 2.650, eða um 430%.
Samtök þrýsta á um aðgerðapakka
Atvikið hefur beint kastljósinu að sívaxandi húsnæðiskrísu í landinu í aðdraganda þingkosninga sem haldnar verða á Spáni á næsta ári.
Leigjendasamtökin þrýsta nú á minnihlutastjórn Pedros Sanchez að samþykkja aðgerðapakka, sem nefndur hefur verið Maricarmen-tilskipunin, á næsta ríkisstjórnarfundi sem haldin verður í næstu viku. Meðal aðgerða í pakkanum er sjálfvirk endurnýjun leigusamninga.
Maricarmen, sem jafnan er auðkennd með skírnarnafni sínu, hefur þannig á stuttum tíma orðið að eins konar andliti húsnæðiskrísunnar. Alicia del Rio, talsmaður leigjendasamtaka Madrídar segir mál hennar vera „síðasta hálmstráið“ en háu húsnæðisverði hefur verið mótmælt um langa hríð. Nú virðist vera að sjóða upp úr hjá almenningi á Spáni.
Skammtímaleigu til ferðamanna um að kenna
Síðan Maricarmen var borin út hafa mótmælin gosið upp í fjölda borga, þar á meðal Sevilla, Alicante, Granada og Barselóna. Víða hefur slegið í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu, sem hefur jafnvel beitt kylfum og piparúða til að halda aftur af mannfjöldanum.
Spánverjar kenna skammtímaleigulausnum á borð við Airbnb um. Stríður straumur ferðamanna til landsins valdi því að íbúðir séu keyptar upp af fasteignafélögum sem sjái meiri gróða í skammtímaleigu en í langtímaleigu til íbúa landsins.
Stjórnvöld á Spáni hafa gert ýmislegt til að reyna að stemma stigu við vandamálinu og auka framboð íbúða á viðráðanlegu verði. Enn þá eru þó aðeins 1,2% íbúða á Spáni í eigu hins opinbera og leiguverð íbúða á almennum markaði er oft svimandi hátt, ekki síst í borgum eins og Madríd og Barselóna.