Forseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, tilkynnti í gær um bann við veðmálasíðum á netinu. Bannið nær til allra veðmála í íþróttum.
Veðmálamarkaðinum í Brasilíu hefur vaxið ásmegin á síðustu árum. Veðmálafyrirtæki auglýsa mikið á netinu og á götum úti og áhrifavaldar og íþróttastjörnur eru áberandi í auglýsingunum.
Veðmálafyrirtæki eru öflugir bakhjarlar fótboltafélaga, en þrettán lið af tuttugu í efstu deild fótboltans eru með veðmálasíður sem sinn aðalstyrktaraðila. Fótboltafélagið Flamengo sagði ákvörðunina þungt högg fyrir brasilískar íþróttir.
Stjórnvöld hafa reynt að koma böndum yfir veðmálamarkaðinn því spilafíkn er mikið vandamál í landinu. Margir hafa tapað miklum fjármunum á veðmálasíðum en ellefu milljarðar dollara hafa streymt úr vösum almennings til veðmálafyrirtækja.
Lula hefur lýst vandamálinu sem krabbameini. Hann segir að annaðhvort þurfi að fjarlægja æxlið eða það drepi þjóðina.
Forsetakosningar eru fram undan í Brasilíu í október og Lula sækist eftir endurkjöri í fjórða sinn. Lula mælist hnífjafn sínum helsta andstæðingi, hægrisinnaða öldungadeildarþingmanninum Flavio Bolsonaro sem er jafnframt sonur Jair Bolsonaro fyrrum forseta landsins.
Skoðanakannanir sýna að margir kjósendur eru á móti veðmálasíðum og Flavio Bolsonaro segir að þetta útspil Lula beri vott um að hann sé örvæntingarfullur.