Þriggja bíla árekstur varð í Reykjavík í gær eða nótt. Í dagbók lögreglunnar segir að óskað hafi verið eftir aðstoð vegna áreksturs þriggja bíla í umdæmi lögreglunnar sem nær yfir Austurbæ, miðborg, Vesturbæ og Seltjarnarnes.
Ekki kemur fram hvort einhver hafi verið fluttur til aðhlynningar á slysadeild.
Þá varð annað umferðarslys í Grafarvogi, Mosfellsbæ eða Árbæ í gær eða nótt. Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar.
Í Hafnarfirði, Garðabæ eða Álftanesi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna fjársvika þar sem einstaklingur neitaði að greiða fyrir þjónustu.