Lögreglan í Suður-Afríku fann í morgun lík konu austur af Jóhannesarborg, það tíunda á aðeins tveimur mánuðum. Örvænting og skelfing borgarbúa fer vaxandi.
Lögregla vinnur nú að því af kappi að skoða hvort líkfundirnir tíu tengist og hvort raðmorðingi leiki lausum hala í Jóhannesarborg og nágrenni. Líkið sem fannst í morgun var í Tembisa, bæ austur af borginni, og heldur lögregla spilunum þétt að sér. Aðeins sé hægt að staðfesta að lík hafi fundist, ekki hvernig andlát konunnar bar að.
Sjónvarpsfréttastöðvar í Suður-Afríku hafa eftir heimildum að konan hafi verið rifin úr fötunum að hluta og skilin eftir í kirkjugarði. Flestar konurnar sem fundist hafa látnar síðustu vikur hafa fundist naktar, ýmist að hluta eða að öllu leyti.
Öll fórnarlömbin voru á þrítugs- eða fertugsaldri og einhverjar konur voru með áverka eftir kynferðisofbeldi. Fyrsta fórnarlambið fannst um miðjan júlí. Það var 37 ára kona sem hafði verið klædd úr öllum fötunum og bundin með rafmagnssnúru. Tveimur dögum síðar var maður handtekinn.
Þegar níunda konan fannst fyrir fáeinum dögum voru tvær konur, 31 árs og 38 ára, handteknar og færðar í varðhald. Lögregla segir að sambandsslit gætu verið orsök morðsins.
Ofbeldi gegn konum er alvarlegt vandamál í Suður-Afríku og verður ein af hverjum þremur konum fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni. Morð eru sömuleiðis algeng í Suður-Afríku. Að jafnaði 60 manns eru drepnir á degi hverjum í landinu, þar sem búa 62 milljónir manna.