Grjóthrun, farvegsbundnar aurskriður og jarðvegsskriður geta áfram fallið, segir á vef Veðurstofunnar. Fólk er hvatt til þess að forðast að staldra við í bröttum hlíðum og að sýna sérstaka aðgát á vegum.
„Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á svæðinu, sérstaklega úr neðri hlutum hlíða þar sem ekki snjóar,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.
Strandavegi milli Bjarnarfjarðar og Djúpavíkur var lokað á föstudaginn eftir að skriða féll á veginn.
Mesta úrkoman hefur mælst á Suðureyri, yfir 120 millimetrar, segir á vef Veðurstofunnar. Einnig hafi mælst yfir hundrað millimetrar á Ísafirði og Gjögri.
Mælt er með því að fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar og kynna sér veðurspár og viðvaranir. Sömuleiðis þiggur Veðurstofan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is.