Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar en undanfarna daga hefur verið unnið að malbikunarframkvæmdum á 4,1 kílómetra löngum kafla á Breiðamerkursandi vestan við Jökulsárlón. Á sama tíma verður unnið að viðgerðum við báða brúarenda brúarinnar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.
Bílum verði hleypt einu sinni í gegnum lokunarsvæðið meðan á lokun stendur, klukkan 22:00.
„Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða merkingar á vinnusvæðinu,“ segir á vef Vegagerðarinnar.