Þúsundir komu saman í Madrid á Spáni í dag til þess að mótmæla því hvernig ríkisstjórn landsins tók á áhlaupi flóttamanna á hólmlenduna Ceuta á norðurodda Marokkó í lok júlí. Um 70 þúsund manns streymdu inn í bæinn, sem tilheyrir Spáni, og þótt flestir hafi snúið aftur til baka halda enn þúsundir hælisleitenda til í bænum, íbúum þar til mikils ama. Mótmælendur í Madrid kröfðust þess í morgun að blásið yrði til kosninga og segja að Ceuta sé ekki til sölu. Standa þurfi vörð um bæjarbúa þar. Þingkosningar verða næst haldnar á Spáni í ágúst næstkomandi.
Þúsundir mótmæltu stjórnvöldum vegna Ceuta