Það er vanvirðing við fólk sem hefur verið að vinna mikilvæg störf hjá hinu opinbera, t.d. í viðkvæmum umönnunar og endurhæfingarstörfum, þegar gerðar eru skipulagsbreytingar með fjöldauppsögnum og látið að því liggja að engin þjónusta skerðist við þær uppsagnir, eins og fólkið hafi ekkert verið að gera. Svona fjöldauppsögn, eins og hjá Reykjavíkurborg nýlega, þekkist ekki síðan í hruninu. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn