„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir

„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir

„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir

Hún hefur gengið í gegnum sorg og áföll en finnur fegurðina í þroskanum, leyfir sér að dreyma stórt án þess að það taki yfir og þegar öllu er á botninn hvolft er hún sannur lífskúnstner. 

Í vor vann Berglind til Grímuverðlauna sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt sem Ófelía í sýningunni Hamlet í Borgarleikhúsinu. Það er nokkuð ljóst að hún er rétt að byrja. 

Berglind Alda býr í Vesturbæ og starfar hjá Borgarleikhúsinu. Henni vegnar mjög vel í starfi og hefur verið áberandi í leikhúsinu að undanförnu.Vísir/Anton

Peppræður það besta við boltann

Berglind fer með aðalhlutverk í nýja verkinu Svikasögur á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og síðastliðin ár hafa verið mikið ævintýri í starfi hennar. 

Hún minnir svolítið á stjörnur frá sjöunda áratugnum á borð við Twiggy og Edie Sedgwick, með stutta hárið sitt og löngu augnhárin, situr vel í sjálfri sér og hefur þurft að leita mikið inn á við í listinni. Í dag býr hún í Vesturbænum með sínum heittelskaða Jakobi van Oosterhout og elskar hversdagsleikann með honum.

„Ég er úr Hafnarfirðinum og er í grunninn fótboltastelpa, þannig að ég er kannski ekki þitt týpíska leikhúsbarn. Þrátt fyrir það kraumaði þessi listræni áhugi alltaf einhvers staðar innra með mér þó að ég gæti ekki almennilega áttað mig á því á þeim tíma,“ segir Berglind brosandi og bætir við að vísbendingarnar hafi þó verið víða.

„Mér fannst alveg gaman í fótboltanum en ég var aldrei landsliðsefni. Undir lok ferilsins var ég fyrirliði í B-liðinu og ég fann mig svo sannarlega í því hlutverki, að vera með peppræður fyrir liðið og svona. Kvöldvökurnar með stelpunum voru líka minn tími til að blómstra,“ segir hún og hlær, en hinar stelpurnar voru ekki jafn spenntar fyrir atriðum og hún.

Berglind æfði fótbolta í tíu ár en henni fannst þó skemmtilegast að halda peppræður og skipuleggja atriði á kvöldvökum með stelpunum.Vísir/Anton

„Ég var að draga vinkonur mínar með mér í hæfileikakeppnir eins og bæjarhátíðina Tvær í tungunum þar sem við klæddumst einhverjum rassabuxum og ég hugsaði: Þetta er að fara að tryggja okkur sigurinn.“

Kosmísk vegferð leitt hana á réttan stað

Berglind gekk í Áslandsskóla og nýtti hvert tækifæri til að stíga á svið.

„Ég áttaði mig samt ekki á því að leikhúsið væri vettvangur fyrir mig fyrr en ég fór í Versló í listabekkinn. Það er eiginlega hálf ótrúlegt að hugsa hvert lífið og heimurinn hefur leitt mig því ég ætlaði mér alltaf að fara í Kvennó. 

Allir í kringum mig fóru í Flensborg en ég fann að mig langaði að fara eitthvað annað og prófa eitthvað glænýtt. Kvennó var fyrsta valið hjá mér alveg þangað til að klukkan var korter í miðnætti daginn sem skilafrestur fyrir umsóknir rann út. 

Ég sat fyrir framan tölvuna með mömmu og fyrrum mágkona mín kom fram til að fara á klósettið. Hún sagði við mig: „Nei Berglind, þú átt að fara í Versló“. Þannig að ég hugsaði bara okei fokkitt og sótti um.“

Berglind segist ekki trúa á neitt tilviljanakennt heldur hafi þetta frekar verið eitthvað kosmískt.

„Heimurinn var að vísa mér leiðina, ég trúi því.“

Feimni, hvað er það?

Feimnin angraði Berglindi aldrei nokkurn tíma.

„Ég held að allir í kringum mig hafi vitað að ég færi í þessa átt. Ég geri oft grín af því að ég er smá svartur sauður fjölskyldunnar, eða ég sting allavega mjög í stúf við systkini mín. 

Ég er yngst og systir mín er mjög feimin þannig að ég var svolítið alin upp við það að tala fyrir hana. Sem barn var ég alltaf að halda atriði heima, við vorum með búningakistu og ég safnaði fjölskyldunni saman og sagði: Nú skal ég skemmta ykkur,“ segir Berglind og skellir upp úr.

Listrænn áhugi Berglindar kemur frá föður hennar.Vísir/Anton

Hún á þó ekki langt að sækja tónlistaráhugann þar sem faðir hennar var tónlistarmaður og Berglind ólst mikið upp í kringum tónlistina.

„Hann var með sitt tónlistarherbergi og oft ómaði gítarleikur og söngur um heimilið. Pabbi var í rokk- og blúsbandi og það er mín æska. Hann var í hljómsveit með vinum sínum og þeir tóku sér ekki alvarlega. Þetta var nokkurs konar bumbuband, svona eins og bumbuboltinn er, og þeir gáfu út plötu og allt.“

„Hvernig þorði ég þessu?“

Þegar Berglind var komin í Versló byrjaði hún sannarlega að blómstra.

„Ég var í Nemó og Listó leikritum og í Rjómanum að gera sketsa. Þar fann ég mig algjörlega.“

Margir unglingar upplifa það að finnast lífið einum of vandræðalegt og vilja helst ekki fara út fyrir neitt sem heitir þægindarammi eða box. Berglind var ekki ein af þeim.

„Ég skil það stundum ekki. Ég horfi oft til baka og hugsa: Hvernig þorði ég þessu eiginlega? Ég er mjög stolt af yngri mér að hafa þorað svona að fara út fyrir boxið. Menntaskólaárin eru viðkvæmur tími en ég var algjörlega óbeisluð. 

Í Rjómanum var ég oft að leika skrýtna karaktera og í Nemó líka. Það er svo frábært, ég er mjög stolt af sér fyrir það þó að ég hugsi stundum bara guð, gerði ég þetta,“ segir Berglind hlæjandi.

Berglind hefur alltaf verið frökk og ófeimin.Vísir/Anton

Í stetsagerðinni höfðu stelpur sem dæmi sannarlega ekki fengið jafn mikið pláss og strákarnir.

„Ég kann rosalega vel að meta það þegar ungar stelpur segjast hafa litið upp til mín frá því ég var í Versló. Það er mjög verðmætt og ég hef verið rosalega lánsöm að finna alltaf stuðning í kringum mig fyrir það sem ég er að gera. Mamma og pabbi hafa alltaf lyft mér upp og sömuleiðis aðrir fjölskyldumeðlimir og vinir.“

Ofboðslega hollt að fá neitun

Besti vinur Berglindar er önnur stjarna í Borgarleikhúsinu, Mikael Kaaber.

„Við vorum saman í bekk í Versló, fórum svo saman í prufur fyrir leikarann í LHÍ og komumst hvorugt inn í fyrstu tilraun. Þá fórum við saman til London til að fara í prufur fyrir skóla þar en vissum bæði að okkur langaði að læra hérna heima. 

Við höfum unnið alls kyns verkefni saman, kynntum meðal annars Skrekk nokkur ár í röð og settum upp sýningu með Gaflaraleikhúsinu.“

Ári síðar flugu vinirnir inn í leikarann hérlendis en neitunin var holl og góð að sögn Berglindar.

„Auðvitað er alltaf erfitt að fá neitun en það er ofboðslega hollt líka. Þú finnur þá hversu mikið þig raunverulega langar að gera þetta og hugsar: „Ég ætla ekki að sætta mig við að láta hér við liggja, ég þarf að vinna enn harðar að þessu“. 

Við Mikki höfum verið mjög samstíga í þessu og það er mjög dýrmætt að eiga svona góða vini sem maður getur speglað sig í og unnið með.“

Missti föður sinn úr „helvítis krabbanum“

Árin í LHÍ voru gefandi og krefjandi fyrir Berglindi.

„Þetta var tími þar sem maður þurfti rosalega mikið að horfast í augu við sjálfan sig, krukka í öllum tilfinningunum og kynnast sér sem listamanni. Þarna var maður ekki lengur bara að grínast á sviðinu heldur var óumflýjanlegt að kafa í dýptina, sem getur verið erfitt en rosalega skemmtilegt líka. En þetta var náttúrulega skrýtinn og erfiður tími fyrir mig persónulega.“

Berglind byrjaði í skólanum haustið 2021 en varð fyrir miklu áfalli fyrr um árið.

„Þá missti ég pabba og maður er allt önnur manneskja fyrir og eftir það. Þannig þurfti ég líka að kynnast sjálfri mér á nýjan hátt. Skólinn hjálpaði mikið til við það og þessi ár voru mjög krefjandi líkamlega og andlega. 

Það er erfitt að koma því í orð hvað þetta er allt mótandi og maður kynnist hliðum á sér sem maður hafði aldrei pælt í áður. Þetta var rosa erfiður en mjög fallegur tími einhvern veginn.“

Berglind var 21 árs þegar hún missti pabba sinn, úr „helvítis krabbanum” eins og hún sjálf segir. Í skólanum kynntist hún samnemanda sínum Jakobi og þau urðu fljótlega góðir vinir.

„Ég man eftir að hafa séð hann í prufunum að spila á trompetið og hann er svo brjálæðislega hæfileikaríkur. Það myndast strax falleg vinátta okkar á milli og við byrjum ekki saman fyrr en í lok annars árs. Frá LHÍ stendur auðvitað upp úr að hafa kynnst Jakobi, það gefur auga leið,“ segir Berglind brosandi. 

Reyndi strax á styrk sambandsins

Þegar þau voru nýbyrjuð saman stóðu þau Jakob og Berglind frammi fyrir mjög krefjandi verkefni.

„Jakob minn veikist úr krabbameini þegar við erum búin að vera saman í alvöru í svona korter. Við sem par vorum þarna sett í þetta verkefni að sjá hversu sterk við erum saman. Við komumst strax að því að við stöndum mjög þétt saman. 

Þetta var náttúrulega erfiðast fyrir Jakob minn en saman náðum við að yfirstíga þetta og ég er rosalega þakklát fyrir sambandið okkar,“ segir Berglind einlæg og ástfangin.

Berglind Alda þurfti að ganga í gegnum ýmsar áskoranir á árum sínum í LHÍ. Hún og Jakob, ástin í lífi hennar, fundu snemma hve sterkt samband þeirra var.Vísir/Anton

Eftir viðburðarík ár í Listaháskólanum fóru hjúin saman í Þjóðleikhúsið. Meðal fyrstu leikverka Berglindar þar var Stormur, söngleikur úr lögum Unu Torfa, og þar var Berglind að syngja, en söngurinn er eitt af fáu sem Berglind hefur verið feimin með.

„Ég hef mjög gaman af því að syngja en ég er nýbyrjuð að vera hugrökk í því. Ég leit aldrei á mig sem söngkonu en nýlega hef ég þorað að segja það. 

Pabbi var náttúrulega söngvari og hann var alltaf að segja við mig: „Þú verður að syngja meira, þú syngur svo vel“. Mér fannst það alltaf vandræðalegt og fannst ég ekkert syngja neitt æðislega. Það er samt eitthvað núna sem fær mig til að hugsa að lífið sé einfaldlega of stutt til að hugsa það, ég elska að syngja og ætla að njóta þess.“

Aðspurð hvort það sé ekki svolítið falleg tenging við föður hennar líka segir Berglind:

„Bara hundrað prósent. Þegar ég syng finn ég einna mest fyrir pabba, raunverulega. Núna er ég að þora að taka utan um það.“

Leikaragata, líf og fjör

Í leikritinu Svikasögur fær Berglind að njóta þess að þenja raddböndin.

„Þetta er mjög áhugavert og skemmtilegt stykki og það er svo gaman að vinna með Maríu Reyndal. Þetta er búið að vera frábært ferli,“ segir Berglind en frumsýningin fór fram síðastliðinn laugardag og gekk gríðarlega vel.

Hér má sjá stiklu úr verkinu Svikasögur:

„Núna er ég komin í smá æfingafrí þannig að dagarnir eru alls konar en hefðbundin rútína hjá mér er þannig að ég er á æfingum alla daga frá tíu til fjögur og svo eru sýningar á kvöldin og um helgar. 

Ég elska hversdagsleikann okkar Jakobs, við búum í Vesturbænum í algjörri leikaragötu og það er mjög mikið líf og fjör,“ segir Berglind og bætir að lokum við að hún reyni alltaf að taka einn dag í einu og sleppa því eftir fremsta megni að ofhugsa hlutina.

„Það er ekki sjálfsagður hlutur að fá að vinna við það sem maður elskar og við Jakob erum bæði svo heppin að fá að gera það. Ég vona að það haldi áfram en ég trúi líka rosalega á það að manifesta og setja orkuna sína á það sem maður þráir og vill. 

Á meðan það er gaman þá er allt gott en ég reyni líka að stressa mig ekki of mikið á því að hugsa um framtíðina. Mér finnst best að taka einn dag í einu, lífið er alltof stutt til að ofhugsa eða hika. Maður á að njóta þess að vera til og ég ætla að halda áfram að reyna það,“ segir þessi káta og klára leikkona glöð í bragði að lokum.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um sýninguna Svikasögur.

#finn #fyrir #mest #syng #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262938599d/-thegar-eg-syng-finn-eg-mest-fyrir-pabba-

📰 Aðrar fréttir

Maðurinn sem vill ekki deyja: Hvetur fólk til að byrja á þessu fyrir heilsuna
📅 26.09.2026 👁️ 0
Maðurinn sem vill ekki deyja: Hvetur fólk til að byrja á þessu fyrir heilsuna
Bandaríski tæknifrumkvöðullinn Bryan Johnson, 49 ára, er þekktur fyrir að reyna að hægja á öldrun og lengja lífið með strangri heilsurútínu. Hann rann...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn
📅 26.09.2026 👁️ 0
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn
Það er vanvirðing við fólk sem hefur verið að vinna mikilvæg störf hjá hinu opinbera, t.d. í viðkvæmum umönnunar og endurhæfingarstörfum, þegar gerðar...
Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón annað kvöld vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða.Lokunin varir á frá klukkan 20 á sunnudagskvöld og til kl...
Svona vill Inga Sæland bregðast við PISA-niðurstöðunum – „Þetta er alvarleg afturför“
📅 26.09.2026 👁️ 0
Svona vill Inga Sæland bregðast við PISA-niðurstöðunum – „Þetta er alvarleg afturför“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, mun í vetur leggja fram endurskoðaða aðgerðaáætlun í menntamálum með skýrum markmiðum, ábyrgð og tímasettum...
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum
📅 26.09.2026 👁️ 0
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum
Lögreglan í Suður-Afríku fann í morgun lík konu austur af Jóhannesarborg, það tíunda á aðeins tveimur mánuðum. Örvænting og skelfing borgarbúa fer vax...
Vikulokin: Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
📅 26.09.2026 👁️ 0
Vikulokin: Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdast...
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur?
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur? Fréttin26. september 2026Erlent, GervigreindLeave a Comment Umræðan um gerv...
Galinn skattur eða sanngjörn þátttaka í kostnaði?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Galinn skattur eða sanngjörn þátttaka í kostnaði?
Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn – það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi – verður lagt á frá og með 1. maí ...
Sex ára stúlka setti heims­met - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Sex ára stúlka setti heims­met - Vísir
Keppnin virkar þannig að Yunzhi leysti kubbinn alls fimm sinnum og er síðan meðaltalið hennar tekið saman. Hún var að meðaltali 4,27 sekúndur að leysa...
„Börnin koma með sjálfið í poka“
📅 26.09.2026 👁️ 1
„Börnin koma með sjálfið í poka“
„Ég er að sjá núna nokkuð sem ég hef ekki séð áður. Börn sem eru kynsegin eða trans reyna í auknum mæli að falla inn í þetta venjulega unglingasamféla...
Auður segir sögu Kristínar systur sinnar sem var myrt 31 árs á heimili sínu: „Þetta tók á og hefur tekið drjúgan tíma“
📅 26.09.2026 👁️ 1
Auður segir sögu Kristínar systur sinnar sem var myrt 31 árs á heimili sínu: „Þetta tók á og hefur tekið drjúgan tíma“
„Mér finnst systir mín eiga það skilið að hennar rödd heyrist og gleymist ekki. Hún barðist alla tíð við að litið væri á hana og aðra fatlaða til jafn...
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
📅 26.09.2026 👁️ 0
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg Hjónin Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn KristjánssonHafa gengið í gegnum ýmislegt. Mynd: Go...
Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
Helstu leigjendasamtök á Spáni hafa hvatt stjórnvöld til þess að tækla þá húsnæðiskrísu sem landið stendur frammi fyrir með lagasetningu.Hávær mótmæli...
Angela Rayner criticises worker visa plans on eve of Labour conference
📅 26.09.2026 👁️ 1
Angela Rayner criticises worker visa plans on eve of Labour conference
The housing secretary says the government's plans to change wait times for permanent residency are unfair because they "change the goalposts".
Fá loksins að fagna aldarafmælinu - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Fá loksins að fagna aldarafmælinu - Vísir
Þyrlan lendir fyrir framan Hörpu klukkan eitt og má búast við smávægilegum umferðartöfum þegar þyrlan lendir. Biðlað er til vegfarenda að sýna tillits...
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín
📅 26.09.2026 👁️ 1
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín Fréttin26. september 2026ErlentLeave a Comment Vladímír Pútín, forseti Rússlands, 25. septem...
UPDATE: Passenger claimed bomb was in luggage before Jet2 plane evacuated at Tenerife South
📅 26.09.2026 👁️ 1
UPDATE: Passenger claimed bomb was in luggage before Jet2 plane evacuated at Tenerife South
Further details have emerged about the bomb scare which forced the evacuation of a Jet2 aircraft at Tenerife South Airport yesterday morning (Friday)....
„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir
Fyrsta rauða flaggið Fjölskyldan hafði flutt til Stykkishólms og bjó tímabundið í húsnæði á vegum bæjarins þegar húsið var afhent haustið 2023. Rannve...
Fury vs Joshua: Long-awaited all-British heavyweight fight could be off, says Tyson Fury
📅 26.09.2026 👁️ 2
Fury vs Joshua: Long-awaited all-British heavyweight fight could be off, says Tyson Fury
Tyson Fury says his long-awaited all-British heavyweight fight against Anthony Joshua in December is in jeopardy.
Hafi hafnað til­lögu Írana um opnum Hor­mússunds - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hafi hafnað til­lögu Írana um opnum Hor­mússunds - Vísir
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, greindi frá því í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að tillagan hefði verið afhent Bandaríkjamönnum ...
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhætta
📅 26.09.2026 👁️ 2
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhætta
Víðáttumikil lægð við norðausturströndina beinir norðlægri átt inn yfir norðvesturhluta landsins með talsverðri úrkomu. Vindur verður á bilinu 10–18 m...
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu
📅 26.09.2026 👁️ 2
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu Fréttin26. september 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Tugir þúsunda nemenda gengu út á gö...
Mörgum spurningum ósvarað í einu umtalaðasta morðmáli seinni tíma
📅 26.09.2026 👁️ 2
Mörgum spurningum ósvarað í einu umtalaðasta morðmáli seinni tíma
Þriðjudaginn 24. janúar 2023 var allt tiltækt lið lögreglu og sjúkraliða sent að Summer Street númer 47 í Duxbury, sem er sextán þúsund manna bær í Ma...
Ætlar að banna veðmál í íþróttum
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ætlar að banna veðmál í íþróttum
Forseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, tilkynnti í gær um bann við veðmálasíðum á netinu. Bannið nær til allra veðmála í íþróttum.Veðmálamarkaði...
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“
Þórarinn Stefánsson er framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum og finnst ákveðin mismunun í viðskiptum vera af hinu góða, aft...
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
📅 26.09.2026 👁️ 2
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist Wojciech Jarosz vann á Kefla­vík­ur­flug­velli en eft­ir ör­laga­ríkt frí í Karíbahaf­inu sæk­ir hann n...
Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni segir að þaulsetin og víðáttumikil lægð við norðaustanvert landið beini norðlægri átt yfir landið norðves...
Fluttur til að­hlynningar eftir um­ferðar­slys - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Fluttur til að­hlynningar eftir um­ferðar­slys - Vísir
Slysið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar fjögur sem þjónustar Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, segir í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu u...
Ætla að koma á samskiptavettvangi fyrir atvik sem tengjast gervigreind
📅 26.09.2026 👁️ 1
Ætla að koma á samskiptavettvangi fyrir atvik sem tengjast gervigreind
Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót samskiptavettvangi fyrir atvik sem upp koma tengd gervigreind. Hvíta húsið greindi frá þessu í gær.Fors...
New 478-room family resort opening in Corralejo in November
📅 26.09.2026 👁️ 2
New 478-room family resort opening in Corralejo in November
A new 478-room resort is preparing to open in Corralejo, Fuerteventura, on 1st November, bringing a substantial increase in accommodation capacity to ...
Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir
Af fyrirsögnum frétta um yfirvofandi útrýmingu mannkyns hefur mátt ætla að söguþráður distópísku hasarmyndanna um Tortímandann, þar sem vélarnar öðlas...
Óttar Guðmundsson skrifar: Misvægi atkvæða á Alþingi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Óttar Guðmundsson skrifar: Misvægi atkvæða á Alþingi
Mynd Ísland var um aldir landbúnaðarland þar sem efnaðir bænd
Lokunin á Laugum og viðskipti með skreið til Nígeríu: „Þetta eru piparsúpur hjá þeim“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Lokunin á Laugum og viðskipti með skreið til Nígeríu: „Þetta eru piparsúpur hjá þeim“
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði verið lokað tímabundið. Þetta var efti...
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginni
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginni
Þriggja bíla árekstur varð í Reykjavík í gær eða nótt. Í dagbók lögreglunnar segir að óskað hafi verið eftir aðstoð vegna áreksturs þriggja bíla í umd...
Þurfa að hreinsa skólp betur
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þurfa að hreinsa skólp betur
Ráðast þarf í umfangsmiklar breytingar á fráveitukerfum og hreinsistöðvum á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok næsta árs til þess að uppfylla nýjar kröfur. ...
WEEKEND WEATHER: Still hot with light haze and strong winds after a wet Friday
📅 26.09.2026 👁️ 3
WEEKEND WEATHER: Still hot with light haze and strong winds after a wet Friday
The Canary Islands are heading into a cloudier and slightly cooler weekend, although the intense September heat has not disappeared completely and tem...
Disaster declared as heavy rains spark Bangkok flooding
📅 26.09.2026 👁️ 2
Disaster declared as heavy rains spark Bangkok flooding
Days of near continuous downpours have caused widespread flooding in the Thai capital.
Frétta­tía vikunnar: Kíró, tár og ræningja­renna - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Kíró, tár og ræningja­renna - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Rui Pinto: The hacker who tried to take down Manchester City
📅 26.09.2026 👁️ 3
Rui Pinto: The hacker who tried to take down Manchester City
BBC Sport travelled to Portugal to find out more about Rui Pinto - the computer hacker who sparked the Manchester City investigation.
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna
„Kraftmiklir krakkar” er verkefni á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem offita barna er aðalatriðið en tilgangur verkefnisins er að bregðast...
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóða
📅 26.09.2026 👁️ 3
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóða
Yfirvöld í Bangkok, höfuðborg Taílands, hafa lýst yfir hamfaraástandi í öllum 50 hverfum borgarinnar vegna úrkomu og flóða. Mikil úrkoma hefur verið í...
White House bars CNN from travelling with Trump on Air Force One
📅 26.09.2026 👁️ 3
White House bars CNN from travelling with Trump on Air Force One
CNN was scheduled to fly with US President Donald Trump for his trip to Tennessee on Saturday.
Burnham not doing enough to boost growth, says Starmer ally
📅 26.09.2026 👁️ 3
Burnham not doing enough to boost growth, says Starmer ally
Ex-Business Secretary Peter Kyle calls for more urgency on the economy, as Labour members head to the party's annual conference.
Andy Burnham not doing enough to boost growth, says former business secretary
📅 26.09.2026 👁️ 2
Andy Burnham not doing enough to boost growth, says former business secretary
Ex-Business Secretary Peter Kyle calls for more urgency on the economy, as Labour members head to the party's annual conference.
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekki
📅 26.09.2026 👁️ 3
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekki
Sérsveit ríkislögreglustjóra kom lögreglunni til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis á fimmtudag, eftir að tilkynnt var um man...
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds
Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að Íranar hafi boðið Bandaríkjamönnum tillögu sem gæti leitt til þess að Hormússund yrði opnað á ný inn...
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í Kyiv
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í Kyiv
Sjö voru drepnir og 46 særðust í árásum Rússa á Kyiv í dag. Árásirnar voru gerðar á samgönguinnviði, skrifstofubyggingu og 16 hæða blokk í borginni.Vo...
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph
📅 26.09.2026 👁️ 3
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph Fréttin26. september 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Hafiz T...
Íbúðarhús hrundi eftir sprengingu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Íbúðarhús hrundi eftir sprengingu
Sex er saknað eftir að íbúðarhús hrundi vegna sprengingar í Aþenu á Grikklandi í dag. Talið er að gasleki hafi orsakað sprenginguna. Borgarstjóri Aþen...
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu Fréttin26. september 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur að sögn hvatt Vladimi...