„Kraftmiklir krakkar” er verkefni á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem offita barna er aðalatriðið en tilgangur verkefnisins er að bregðast við vaxandi tíðni offitu barna á Suðurlandi. Boðin er fagleg meðferð og stuðningur innan heilsugæslunnar til að bregðast við vandamálinu. Orsakir offitu geta verið flókið samspil umhverfis, sálfélagslegra og erfðafræðilegra þátta, sem hafa áhrif á barnið og fjölskyldu þess. Þverfaglegt teymi er á bak við verkefnið hjá heilsugæslunni.
„Ástæðan fyrir því að við fórum af stað með þetta verkefni var að við sáum að algengi offitu á Suðurlandi var að aukast mjög mikið,” segir Bjarnheiður Böðvarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og umsjónarmaður verkefnisins „Kraftmiklir krakkar”.
Bjarnheiður segir að offita hafi mjög mikil áhrif á heilsu barna, en hvernig?
„Henni fylgja fylgikvillar sem eru til dæmis efnaskiptavilla, fitulifur, kæfisvefn, hár blóðþrýstingur og börn sem eru með offitu eru líka líklegri til að vera með offitu á fullorðinsárum og þá geta þau farið að þróa með sér hjarta- og æðasjúkdóma,” segir hún.
Bjarnheiður segir að þau börn sem hafi sótt þjónustu heilsugæslustöðvanna hafi náð góðum árangri vegna offitu sinnar, það sýni rannsókn sem var gerð.
„Börnin náðu að hægja á sinni þyngdaraukningu og þau náðu líka að breyta venjum sínum töluvert mikið og síðan bötnuðu blóðprufurnar líka,” segir Bjarnheiður.
En offita barna, hvaða tölur erum við að tala um þar?
„10 prósent barna eru með offitu á landsbyggðinni og sem sagt á Suðurlandi og hún hefur farið hratt vaxandi síðastliðin ár. Þetta er miðað við börn á grunnskólaaldri en þá eru þetta um fjögur hundruð börn hérna á Suðurlandi sem eru með offitu,” segir Bjarnheiður.
Heilbrigðisráðherra hefur hrósað Heilbrigðisstofnun Suðurlands sérstaklega fyrir verkefnið „Kraftmiklir krakkar“. En er ekki upplagt að aðrar heilsugæslustöðvar taki verkefnið upp, þannig að það sé ekki bara á Suðurlandi?
„Já, við erum bara að vona að aðrar heilsugæslustöðvar taki svipað verklag upp hjá sér því við teljum að þetta sé mjög mikilvægt,” segir Bjarnheiður.