Víðáttumikil lægð við norðausturströndina beinir norðlægri átt inn yfir norðvesturhluta landsins með talsverðri úrkomu. Vindur verður á bilinu 10–18 m/s.
Á láglendi yfirleitt rigning en líkur á slyddu og snjókomu niður undir sjávarmál á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum.
Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Á norðvesturhluta landsins er útlit fyrir að veður verði svipað í dag og á morgun.
Á sunnan- og austanverðu landinu verður vindur hins vegar mun hægari um helgina, skýjað með köflum en dálítil væta á stöku stað. Hiti 3 til 12 stig að deginum, svalast á Vestfjörðum en mildast fyrir austan
Vara við skriðum
Það eru enn skriðuviðvaranir í gildi fyrir norðanverða Vestfirði og Strandir þar sem hefur rignt í alla nótt.
Martina Stefani, sérfræðingur við ofanflóðahættumat á Veðurstofunni, segir að það hafi aðeins snjóað til fjalla sem dragi úr skriðuhættu.
Veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi úrkomu og Martina býst við því að viðvaranir verði áfram í gildi fram eftir degi.