Slysið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar fjögur sem þjónustar Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, segir í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf gærkvöldsins og næturinnar.
Þar að auki hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu vegna þriggja bíla áreksturs miðsvæðis í borginni en slysinu er ekki lýst nánar.
Þá hafi sjö verið handteknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis- eða fíkniefna. Einn hafi verið handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt og vörslu fíkniefna.