Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði verið lokað tímabundið. Þetta var eftir úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar.
Nefndin telur að ekki sé gætt nægilega vel að vatnsvernd á svæðinu í rekstrinum og að gæði vatns á Laugum geti versnað ef starfsemin fær að halda áfram. Nokkrir íbúar á Laugum höfðu kvartað ítrekað vegna ýmissa þátta í starfseminni, meðal annars út af ólykt.
Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en í dag er reksturinn hluti af starfsemi útgerðarrisans Samherja. Þar eru þorskhausar meðal annars þurrkaðir og seldir til Nígeríu og kallast skreið.
Í svari frá Samherja í tölvupósti kemur fram að úrskurðurinn hafi komið fyrirtækinu í opna skjöldu. Það sé afar íþyngjandi að ákvörðun um útgáfu starfsleyfis sé felld úr gildi með þessum hætti og unnið sé að lausn í málinu sem tryggi að starfsemin geti haldið áfram. „Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um ógildingu ákvörðunar um veitingu starfsleyfis kom okkur í opna skjöldu. Eins og fram hefur komið þá snýst úrskurðurinn hvorki um vankanta á starfseminni né brot á útgefnu starfsleyfi, heldur um það hvað teljist fullnægjandi upplýsingar um grunnástand vatnshlota.“
Í svarinu frá Samherja segir að unnið sé að lausn málsins. „Unnið er að lausn málsins. Von er á viðbrögðum frá yfirvöldum á allra næstu dögum. Að málinu koma líka okkar ráðgjafar í umhverfismálum, sveitarfélagið og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Allir eru einhuga um að finna farsæla lausn í málinu og að verksmiðjan geti hafið störf sem fyrst.“
En hvert er samhengi þessarar skreiðarverkunar Samherja á Laugum og viðskipta Íslendinga með þessa vöru til Nígeríu? Fjallað er um þessa tímabundnu lokun á Laugum og sögulegt samhengi skreiðarverslunar Íslendinga til Nígeríu í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Sautján þúsund tonn fyrir um níu milljarða
Í fyrra voru rúmlega 17 þúsund tonn af hertum fiskafurðum seld frá Íslandi og úr landinu. Aðallega var um að ræða hertan þorsk en einnig ýsu og svo aðrar tegundir í minna mæli. Rúmlega 15 þúsund tonn fóru til Nígeríu sem í gegnum tíðina hefur verið langmikilvægasta útflutningsland Íslands í skreiðarverslun.
Elvar Einarsson er framkvæmdastjóri og eigandi fiskútflutningsfyrirtækisins Sölku Norfish á Dalvík sem sérhæfir sig í því að selja skreið til Nígeríu. Hann segir að ellefu fiskþurrkunarfyrirtæki séu starfandi á Íslandi í dag. Viðskipti með skreið frá Íslandi nemi um níu milljörðum á ári. Ísland og Noregur skipti með sér markaðnum þar í Nígeríu.
Elvar nefnir að eitt af því sem sé merkilegt við skreiðina frá Íslandi og Noregi sem seld er í Afríku sé að Nígería sé eina landið þar sem skreiðin er borðuð. Hann viti ekki alveg af hverju það sé. Íslendingar geti hins vegar sinnt skreiðarmarkaðnum í Nígeríu betur.
Hvernig nota Nígeríumenn skreiðina frá Íslandi í matargerð? Elvar svarar þessu. „Þessi vara er mjög vinsæl í Nígeríu, sérstaklega á Biafra-svæðinu gamla. Það eru þá kristnir menn í Nígeríu sem eru aðalviðskiptavinir okkar. Þessi vara er notuð sem prótein og hausarnir eru notaðir í súpur og þetta þverskorna og afskurður og annað er allt saman herramannsmatur þarna niður frá þegar þetta er komið í kássur eða súpur eða svoleiðis rétti. Þetta er yfirleitt mjög kryddað, þetta eru piparsúpur hjá þeim sem eru með þessu. Þetta þykir alveg nauðsynlegt að hafa sem krydd til að bragðbæta súpurnar,“ segir Elvar sem sjálfur hefur prófað súpu með íslenskri skreið í Nígeríu.