Yfirvöld í Bangkok, höfuðborg Taílands, hafa lýst yfir hamfaraástandi í öllum 50 hverfum borgarinnar vegna úrkomu og flóða. Mikil úrkoma hefur verið í borginni síðustu þrjá daga sem hefur valdið miklum flóðum. Vatn flæðir um götur og inn í hús og veitingastaði.
Verst er ástandið í austurhluta borgarinnar og hjá þeim sem búa nærri skurðum sem nú þegar eru yfirfullir af vatni. Bifreiðaeigendum hefur verið ráðlagt að færa bíla sína til annarra svæða sem eru í meiri hæð yfir sjávarmáli.
Rigningaveður er áfram í kortunum næstu daga og hætta er á skyndiflóðum, aurskriðum og vatnsflóðum.