Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón annað kvöld vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða.
Lokunin varir á frá klukkan 20 á sunnudagskvöld og til klukkan 7 á mánudagsmorgun. Vegagerðin hyggst gera við malbik við báða brúarenda brúarinnar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.
Bílum verður hleypt einu sinni í gegnum framkvæmdasvæðið – klukkan 22.