Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt yfir klukkan tíu í morgun vegna hestamanns sem féll af baki í Þrengslagili í Borgarbyggð.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir þyrluna rétt ókomna á svæðið.
Ekki er vitað um meiðsl mannsins.
Fréttin hefur verið uppfærð.