Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað samkomulagi sem myndi gera hlé á átökum við Íran. Íranski herinn er sagður hafa hótað því að ráðast á allar herstöðvar Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum.
Tveimur stórafmælum verður fagnað í dag, Landhelgisgæslan fagnar aldarafmæli en Menntaskólinn í Hamrahlíð sextíu árum. Þyrla gæslunnar lendir fyrir framan Hörpu og fjármálaráðherra etur kappi við sigurlið MH í Gettu betur.
Skiptar skoðanir eru á nýju portretmálverki af Friðriki Danakonungi sem hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Í sportinu verður fjallað um ólgu sem ríkir fyrir leik írska landsliðsins gegn því ísraelska en Heimir Hallgrímsson er þjálfari Írlands.
Þetta og meira í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.