Þriðjudaginn 24. janúar 2023 var allt tiltækt lið lögreglu og sjúkraliða sent að Summer Street númer 47 í Duxbury, sem er sextán þúsund manna bær í Massachusetts í Bandaríkjunum. Tilkynning hafði borist frá húsráðanda um að eiginkona hans hefði reynt að svipta sig lífi með því að skera sig á háls og úlnliði og stökkva út um glugga hússins á annarri hæð.
Það var myrkur úti og snjór á jörðu, kalt en stillt og þurrt veður þetta kvöld. Þegar lögregluþjónar komu á staðinn sáu þeir slasaða konu liggja á bakinu með höfuðið næst húsinu. Hún var klædd í hlýrabol og stuttar gallabuxur og með klút um hálsinn. Yfir henni stóð maður með síma í hendinni. Skyndilega gekk maðurinn hröðum skrefum fram hjá lögreglunni og fór inn í húsið.
Skömmu síðar heyrðust hávær öskur koma innan úr kjallara hússins, þar sem þrjú börn fundust látin. Það elsta var fimm ára og það yngsta átta mánaða.
Konan sem lá á jörðinni var Lindsay Clancy og maðurinn sem stóð yfir henni var þáverandi eiginmaður hennar, Patrick Clancy. Hér á eftir verða eiginnöfn þeirra notuð til aðgreiningar, það er Patrick og Lindsay. Lindsay var ákærð fyrir að verða börnum sínum þremur að bana. Þúsundir og jafnvel milljónir fylgdust með réttarhöldunum yfir henni, sem meðal annars voru sýnd í beinni útsendingu á TikTok.
Á upptöku af símtali Patricks við neyðarlínuna heyrist hann spyrja Lindsay hvað hún hafi gert við hálsinn á sér og hvar börnin séu. Engin orð heyrast koma frá Lindsay, einungis óhljóð og stunur. Upptakan var spiluð við réttarhöldin en hefur ekki heyrst opinberlega. Samkvæmt útskrift af símtalinu heyrist Patrick segja við einhvern að vera hjá Lindsay á meðan hann athugi með börnin sín. Síðan heyrist hann hrópa á einhvern að vakna og svo heyrast skelfileg öskur. Loks heyrist hann segja „She killed the fucking kids“ eða „Hún drap [...] börnin.“
Patrick sagði fyrir dómi að hann hefði fundið stúlkuna og yngri drenginn fyrst, á grúfu og með æfingabönd bundin um hálsinn. Hann hefði losað böndin og því næst farið inn á skrifstofu sína þar sem miðjubarnið fannst, einnig með æfingaband um hálsinn. Lýsingar á aðkomunni eru skelfilegar og verða ekki raktar frekar hér. Farið var með börnin á sjúkrahús og gerðar voru endurlífgunartilraunir á þeim, en þau voru öll án lífsmarka. Eldri börnin tvö voru úrskurðuð látin skömmu síðar. Um hálftíma eftir komuna á sjúkrahús tókst læknum að lífga yngsta barnið, Callan litla, við. Hann lést þremur dögum síðar.
Var nær dauða en lífi
Lindsay var einnig flutt á sjúkrahús, nær dauða en lífi. Hún þurfti tvöfalda blóðgjöf og fór í hjartastopp þá um nóttina. Hún var með alvarlega ofkælingu, en líkamshiti hennar mældist einungis 27 gráður þegar komið var með hana á spítalann. Í blóði hennar fundust fjögur mismunandi lyf en þó ekki í lífshættulegu magni. Hún var með skurði þvert yfir báða úlnliði og skurði þvert á hálsinn, með mikla innvortis áverka á og við hryggjarsúlu, brotna hálsliði, sprungna banakringlu og kramið skjaldbrjósk, sem er brjóskið efst í barkanum. Réttarmeinafræðingur sem bar vitni fyrir dómi sagði allt benda til þess að Lindsay hefði ekki borið hendurnar fyrir sig þegar hún féll niður af annarri hæð hússins og þess vegna lent beint á höfðinu, með þeim afleiðingum að hálsliðirnir brotnuðu. Lindsay er nú lömuð fyrir neðan mitti.
Hvað gerðist þennan örlagaríka dag?
Lindsay og Patrick höfðu verið heima nánast allan daginn, hann að vinna á skrifstofu sinni í kjallara hússins og hún að sinna börnunum, Coru fimm ára, Dawson þriggja ára og Callan litla sem var átta mánaða. Lindsay hafði farið með Coru til læknis snemma morguns en stúlkan hafði kvartað undan magaverkjum og átt í erfiðleikum með klósettferðir.
Miðað við gögn úr síma Lindsay fór hún svo með börnin út að gera snjókarl. Það sem gerðist eftir það er enginn til frásagnar um nema þau Lindsay og Patrick.
Við skýrslutöku hjá lögreglu, tveimur og hálfum klukkutíma eftir að lögregla kom fyrst að húsi Clancy-fjölskyldunnar, sagði Patrick að Lindsay hefði átt við andlega erfiðleika að stríða og leitað til geðlækna sem hefðu skrifað upp á að minnsta kosti sjö ólík geðlyf. Hann sagði að Lindsay hefði glímt við sjálfsvígshugsanir og óttast að skaða börnin.
Hann sagði að um klukkan korter yfir fimm hefði Lindsay hringt á veitingastað og pantað mat fyrir þau hjónin sem Patrick hefði farið að sækja. Á leiðinni hefði hann stoppað til að kaupa laxerandi lyf fyrir dóttur þeirra í apóteki. Annars hefði hann verið heima allan daginn. Þegar hann kom heim aftur var hljótt í húsinu, sagði Patrick. Hann hefði farið upp á aðra hæð og komist að því að hjónaherbergið væri læst. Þegar þangað inn var komið sagði Patrick að hann hefði séð blóð í herberginu og að glugginn væri opinn. Hann hefði hlaupið niður í garð og fundið Lindsay liggjandi á jörðinni, með skurði á úlnliðum og hálsi. Hann hefði þá hringt í neyðarlínuna. Þegar lögreglan kom á vettvang fór Patrick aftur inn í húsið og niður í kjallara þar sem hann fann börnin.
Patrick sagði einnig við skýrslutökuna að hjónaband þeirra Lindsay væri frábært. Þau segðu við hvort annað tíu sinnum á dag hve mikið þau elskuðu hvort annað. Í lok skýrslutökunnar gaf Patrick lögreglunni leyfi til að taka ljósmyndir af fötum hans, andliti og höndum, en ekki voru tekin lífsýni af honum þetta kvöld.
Ákærð innan við sólarhring eftir morðin
Lögreglan fór fram á húsleit morguninn eftir og leyfi til að taka lífsýni af Lindsay, sem var enn nær dauða en lífi.
Lögreglan fór einnig fram á að leggja hald á ýmsa muni sem gætu flokkast sem sönnunargögn, meðal annars síma Lindsayjar. Af leitarbeiðninni að ráða er ekki hægt að sjá að lögreglan hafi lagt hald á síma Patricks. Í rökstuðningi fyrir húsleit og haldlagningu segir að allt bendi til að þrjú börn hafi verið kyrkt og tvö þeirra verið myrt. Þar segir einnig orðrétt: Þessi afbrot voru framin af Lindsay Clancy.
Lindsay var ákærð fyrir morð 25. janúar, daginn eftir andlát eldri barnanna tveggja og tveimur dögum áður en yngsta barnið lést. Hún var enn meðvitundarlaus á spítala. Hún var handjárnuð við sjúkrarúmið og vopnaðir verðir gættu hennar. Þegar hún komst til meðvitundar mundi hún ekki hvað hafði gerst.
Álitin sek frá upphafi
Áður en réttað var yfir Lindsay töldu eflaust flestir víst að hún væri sek, enda voru fyrirsagnir fjölmiðla gjarnan á þá leið, en mörgum spurningum sem vöknuðu við réttarhöldin er enn ósvarað. Núna virðist almenningsálitið skiptast í þrennt, í það minnsta á samfélagsmiðlum: þau sem halda að hún sé einfaldlega sek, þau sem telja að hún hafi gert þetta en ekki verið sjálfrátt þar sem hún hafi verið í einhvers konar geðrofi vegna fæðingarsturlunar og vegna lyfjanna sem hún fékk uppáskrifuð, og loks þau sem telja að einhver annar hafi myrt börnin og hugsanlega þá einnig gert Lindsay mein þennan örlagaríka dag.
Mögulegur þáttur eiginmannsins er til að mynda nokkuð sem síðastnefndi hópurinn hefur verið hávær um.
Lögreglan í Duxbury kortlagði ferðir Patricks þennan dag. Samkvæmt upplýsingum úr öryggismyndavélum var hann í apótekinu upp úr klukkan hálf sex og á veitingastaðnum klukkan fimm mínútur í sex. Sextán mínútum síðar hringir hann á neyðarlínuna. Miðað við vegalengdir frá heimilinu að apótekinu annars vegar og veitingastaðnum hins vegar var hann því í burtu frá heimilinu í að minnsta kosti hálftíma. Lögreglan virðist líta á þetta sem fjarvistarsönnun fyrir Patrick, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir nákvæmlega klukkan hvað börnin voru myrt.
Lögreglan virðist aldrei hafa kannað þann möguleika að þriðji aðili gæti hafa ráðist inn á heimilið og framið morðin.
Bar við ósakhæfi sökum fæðingarsturlunar
Lindsay lýsti yfir sýknu fyrir dómi, en í skaðabótamálum sem Lindsay og Patrick hafa höfðað gegn heilbrigðisstarfsfólki sem sinnti henni í aðdraganda morðanna lýsir hún að hafa heyrt karlmannsrödd skipa sér að drepa börnin og svipta sig lífi og hún hafi ekki getað annað en hlýtt. Verjandi Lindsayjar, Kevin Reddington, byggði vörnina á að hún hefði verið ósakhæf á verknaðarstundu sökum fæðingarsturlunar.
Reddington fór fram á að sakarefninu væri skipt, þannig að fyrst væri fjallað um sekt eða sýknu og ef niðurstaðan væri sekt færi fram önnur málsmeðferð þar sem sakhæfið væri metið. Dómarinn hafnaði þessari beiðni. Reddington var mjög ósáttur við það. „Fyrir margt löngu fór ég fram á það við dóminn að málaferlunum yrði skipt upp, með þeim rökum að sakborningar í málum sem lúta að sakhæfi ættu erfitt um vik, þar sem að til þess að geta haldið fram ósakhæfi á verknaðarstundu þyrfti viðkomandi á vissan hátt að gangast við brotinu,“ sagði Reddington.
Sýkna var á borðinu
Þrátt fyrir að vörnin hafi byggt á að Lindsay hafi verið ósakhæf þá snerist dómsmálið ekki eingöngu um það, heldur þurfti saksóknari að sýna fram á sekt – og síðan að sanna að Lindsay hefði verið sjálfrátt á verknaðarstundu. Jafnvel kviðdómendur virðast hafa misskilið þetta, miðað við það sem þeir sögðu í viðtölum eftir að málið var ógilt, en þeir virðast hafa talið að þeirra hlutverk væri eingöngu að meta sakhæfi og gengið að því sem vísu að hún hefði gert þetta, þrátt fyrir að dómarinn hefði ítrekað sagt þeim að ef ekki væri hægt að sanna sekt svo það væri hafið yfir skynsamlegan vafa bæri þeim að sýkna.
„Í svona málum hefur ákæruvaldið enn þá skyldu að sanna fyrir kviðdómi, þannig að það sé hafið yfir skynsamlegan vafa, að sakborningur sé sekur, byggt á sönnunargögnum í málinu,“ sagði Reddington.
„Ekki bara hörmuleg rannsókn, þetta var engin rannsókn“
Líkt og áður sagði hefur málið vakið mikla athygli um allan heim, sér í lagi á samfélagsmiðlum, þar sem margir lýsa efasemdum um sekt Lindsayjar og benda á ýmislegt sem vekur upp spurningar, ekki síst um rannsókn lögreglunnar og málflutning ákæruvaldsins sem virðist byggja að miklu leyti á framburði Patricks. Þannig er tímalínan sem ákæruvaldið heldur fram miðuð við þann tíma sem Lindsay á að hafa verið ein heima með börnin, það er þegar Patrick fór í apótekið og á veitingastaðinn, en margir vilja meina að morðin kunni að hafa átt sér stað áður en Patrick yfirgaf heimilið.
Patrick bar fyrir dómi að hann hefði hringt í Lindsay úr apótekinu þar sem lyfið sem hann hefði átt að kaupa hefði ekki verið til, og hann hefði spurt Lindsay hvort það væri í lagi að kaupa samheitalyf, en meðal þeirra gagna sem voru gerð upptæk á heimilinu var poki frá apótekinu með rétta lyfinu í, ekki samheitalyfinu.
Á blóðugum hnífi sem Lindsay á að hafa notað til að skera sig á háls og úlnliði fannst hvorki nothæft fingrafar né lífsýni. Þá fannst ekki lífsýni úr Lindsay á einu af morðvopnunum. Og þegar Lindsay fannst liggjandi á jörðinni var hún rennblaut en engin skýring hefur verið gefin á því hvers vegna. Einnig vekur furðu að líkamshiti hennar skuli hafa lækkað svo mikið á þeim stutta tíma sem Patrick var að heiman en eins og áður sagði var hún með alvarlega ofkælingu og hitinn mældist einungis 27 gráður.
Fleira bendir til þess að rannsókn lögreglu hafi verið ábótavant. Lögreglan gerði til að mynda ekki upptækt snjallúr Lindsayjar né lyfjaglös sem verjandi hennar fann í náttborðsskúffu í hjónaherberginu nokkrum dögum síðar. Einnig voru lyfjaglös í bíl Patricks sem lögreglu láðist að finna. Þá rannsakaði lögregla ekki innihald krúsar á náttborðinu sem Patrick sagði að í væru leifar af muldum lyfjum, sem ákæruvaldið hélt fram að Lindsay hefði innbyrt til að svipta sig lífi. Blóðdropar sem fundust á utanverðri svefnherbergishurðinni voru heldur ekki rannsakaðir, svo fátt eitt sé nefnt, en þetta er langt í frá tæmandi listi.
Reddington taldi rannsókn lögreglu svo ábótavant að það kallaði á sýknu. „Ef það er hægt að færa sönnur fyrir því að rannsókn lögreglu hafi verið ábótavant þá hefur kviðdómur rétt á að meta það sem grundvöll fyrir sýknu, að það sé vafi á sekt miðað við hversu léleg rannsóknin var,“ sagði Reddington. „Í þessu máli var ekki bara um lélega rannsókn að ræða, þetta var ekki einu sinni hörmuleg rannsókn, þetta var engin rannsókn.“
„Þeir einfaldlega tóku því sem sjálfgefnu að hún hefði myrt börnin, krakkarnir væru í kjallaranum, hún væri sek, og búið spil. Þeir rannsökuðu ekki neitt.“
Einungis Patrick heyrði Lindsay tala
Á samfélagsmiðlum hafa margir lýst yfir efasemdum um að Lindsay hefði getað talað við Patrick þar sem hún lá nær dauða en lífi í garðinum, með alvarlega ofkælingu og miðað við þá miklu áverka sem hún var með, en viðbragðsaðilar sögðu fyrir dómi að hún hefði ekki getað tjáð sig við þá. En ef Lindsay gat ekki tjáð sig við Patrick, þá hefði hann ekki getað vitað að börnin væru í kjallaranum.
Þá þykja mörgum viðbrögð lögreglumanna á vettvangi undarleg, þar sem þeir koma að karlmanni standa yfir stórslasaðri konu en leyfa honum að fara af vettvangi og inn í húsið einsamall.
Þessar raddir hafa verið svo háværar að Patrick kom fram í sextíu mínútum á CBS-sjónvarpsstöðinni ásamt núverandi eiginkonu sinni til að segja sína hlið. Hann sagði slíkan málflutning skaðlegan, ekki bara sjálfum sér heldur einnig öðrum. „Þetta hefur skaðað minningu barnanna minna,“ sagði Patrick. „Þetta dregur athyglina frá því sem skiptir raunverulega máli hérna, sem er andleg heilsa kvenna eftir fæðingu.“
Patrick segist hafa fyrirgefið Lindsay og sé þess fullviss um að andlegum veikindum og fæðingarsturlun sé um að kenna. Lindsay hafi verið að glíma við svefnleysi, þunglyndi og óþægilegar og áleitnar [e. intrusive] hugsanir. Lyfin sem hún fékk uppáskrifuð hafi eingöngu gert illt verra.
Málið hefur varpað ljósi á skert aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu í Bandaríkjunum og hvernig bandarískt heilbrigðiskerfi bregst við geðrænum veikindum hjá konum eftir fæðingu, en Lindsay hafði gengið á milli lækna mánuðum saman í leit að hjálp.
Mun sjaldgæfara að konur fremji slík ofbeldisbrot
Athyglin sem málið hefur fengið er þó kannski einna helst vegna þess hversu sjaldgæft það er að konur fremji svo hræðilega glæpi, en 94% gerenda í sambærilegum málum í Bandaríkjunum eru karlmenn. Samkvæmt tölfræði FBI gerist það á fimm daga fresti að karlmaður drepur fjölskyldu sína. Á þeim sex vikum sem réttarhöldin yfir Lindsay stóðu yfir drápu átta karlmenn konu sína og börn í Bandaríkjunum einum.
„Við vitum það að meirihluti gerenda í ofbeldismálum eru karlmenn og meirihluti þolenda eru konur og samt einhvern veginn vekja þau mál ekki mikla athygli í samfélaginu,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. „Ég held að við sem samfélag þurfum að vera mjög vakandi fyrir þessu, að þegar það kemur eitt mál þar sem kona er gerandi og það fær svona mikla umfjöllun á móti því að það koma 100 mál sambærileg þar sem karlmenn eru gerendur og það gerir enginn neitt í því.“
Það eru ekki síður þeir sem telja Lindsay seka sem eru háværir á samfélagsmiðlum. „Það er auðvitað fyrst og fremst vegna þess að meintur gerandi er kona,“ segir Jenný. Þetta sé líka hluti af hatursorðræðu gagnvart konum, þar sem þær eru jafnan dæmdar harðar.
Jafngildir frásögn Lindsayjar sekt?
Líkt og áður sagði þá gekkst Lindsay við því að hafa myrt börnin í einkamáli gegn heilbrigðisstarfsmönnum. En þrátt fyrir það og þrátt fyrir að vörnin hafi byggt á ósakhæfi á verknaðarstundu er ekki þar með sagt að hún hafi gert þetta. Fjölmörg dæmi eru um að sakborningar hafi játað hræðilega glæpi sem þeir frömdu ekki. Má þar nefna til dæmis mál Central Park 5, fimm unglingspilta sem játuðu við yfirheyrslur að hafa nauðgað konu hrottalega í Central Park almenningsgarðinum í New York árið 1989. Þeir voru sýknaðir 13 árum síðar. Mál sexmenninganna frá Birmingham er annað, en þeir játuðu á sig hryðjuverk, þar sem 21 lést og 182 særðust. Þeir voru hreinsaðir af öllum ákærum og látnir lausir 1991.
Meðal þeirra sem báru vitni þegar mál sexmenninganna var tekið fyrir árið 1991 var Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur sem rannsakaði játningar mannanna. Hann segir að falskar játningar séu mun algengari en áður var talið. Gísli er ekki síst þekktur fyrir rannsókn sína á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, en hann mat framburð fimm sakborninga óáreiðanlegan og framburð eins, Guðjóns Skarphéðinssonar, beinlínis falskan.
Mundi ekki atburði og var upplýst um þá
Í þessu ljósi er áhugavert að skoða framburð Kirks Heilbrun, réttarsálfræðings, sem bar vitni fyrir ákæruvaldið í réttarhöldunum yfir Lindsay, en mörgum fannst það sem hann sagði frekar styrkja málstað Lindsayjar. „Þegar hún komst til meðvitundar þetta kvöld á spítalanum þá sagði hún meðal annars að hún gæti ekki munað hvað hafði gerst, þannig að hún var upplýst um það,“ sagði Heilbrun, og bætti því við að þegar fólk sem glímir við minnisleysi og reynir að rifja upp gleymda atburði geti utanaðkomandi upplýsingar haft áhrif á minnið.
Lindsay var því sagt þegar hún vaknaði úr dáinu að hún hefði myrt börnin sín þrjú og reynt að svipta sig lífi.
Samkvæmt því sem fram kom í viðtali 60 mínútna við Patrick þá er minning hennar um atburðinn eins og minning um draum. Kevin Reddington, lögmaður Lindsayjar, vill meina að minningar hennar um atburðinn séu falskar.
Ógilt mál og óvíst um framhaldið
Málið gegn Lindsay var ógilt eftir að kviðdómur gat ekki komist að sameiginlegri niðurstöðu. Saksóknari hefur heimild til að leggja málið aftur fyrir dóm. Það þýddi ný réttarhöld, nýjan kviðdóm, allar vitnaleiðslur væru endurteknar og aftur reynt að komast að niðurstöðu.
Ellefu af tólf kviðdómendum töldu ákæruvaldið ekki hafa sannað mál sitt svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa og vildu sýkna á grundvelli ósakhæfis á verknaðarstundu, en einn var á móti. Reddington hefur nú farið fram á að lagt verði hald á farsíma tólfta kviðdómandans vegna gruns um að hann hafi brotið reglur um símanotkun meðan á réttarhaldinu stóð, og skoðað verði hvort hann hafi greint rangt frá þegar hann var boðaður í kviðdóminn, en samkvæmt frétt NBC-fréttastofunnar hafði hann sætt kæru fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi og verið dæmdur í nálgunarbann gegn ungum frænda sínum eftir að hafa beitt hann ofbeldi.
Reddington hefur einnig farið fram á að dómarinn í málinu lýsi yfir sýknu á grundvelli þess að ekki sé hægt að ná fram sakfellingu miðað við þau sönnunargögn sem lögð hafa verið fram. Hver afstaða dómara til þessa verður á eftir að koma í ljós.