Leikkonan Mindy Kaling hefur loksins tjáð sig um þrálátan orðróm um ástarlíf sitt og faðerni barna sinna. Mindy hefur aldrei gefið upp hver faðir barna hennar er, en netverjar eru sannfærðir um að það sé í raun leikarinn B.J. Novak, en hann er guðfaðir barnanna og einn besti vinur Mindy.
Mindy og B.J. léku par í þáttunum The Office fyrir um tveimur áratugum síðan en allar götur síðan hafa aðdáendur þáttanna verið sannfærðir um að leikararnir ættu í leynilegu ástarsambandi. Aðdáendur fengu ósk sína uppfyllta á árunum 2004-2007 þegar leikararnir voru vissulega í sambandi. Þau hættu saman en héldu áfram að vera vinir og hafa svo gott sem verið óaðskiljanleg síðasta áratuginn eða svo. Mindy segist hafa skilning á þessari samsæriskenningu.
„Ef ég væri að horfa á þetta utan frá þá myndi ég velta þessu sama fyrir mér og bregðast einmitt svona við,“ sagði leikkonan í samtali við Bustle.
„Hann er raunverulegur hluti af fjölskyldunni og ég elska að tala um hann því börnin mín dýrka hann og hann er stór hluti af okkar lífi,“ segir Mindy en tekur fram að hann sé ekki barnsfaðir hennar og ekki kærastinn hennar heldur. Hún hefur ákveðið að halda faðerni barnanna leyndu þar til þau eru orðin nægilega gömul til að eiga slíkt samtal við hana.
Mindy er einhleyp og ekki í makaleit.
„Það er galið fyrir manneskju eins og mig, sem varði stórum hluta lífs míns í að skrifa um ástarleit, að vera hamingjusöm og sátt án maka.“