Til foreldra trans barna og ungmenna – og til allra hinna

Eldur Smári Kristinsson skrifar:
Kannski last þú grein Maríu Gunnarsdóttur og fannst hún skynsamleg. Hún biður um varkárni og heildarmat. Auðvitað viltu það. En það sem hún skilur eftir ósagt er hversu mikið foreldrar svokallaðra transbarna verða að sannfæra sjálfa sig um að þessar tilraunir á börnum sínum séu réttlætanlegar.
Ég skil það mjög vel! Það hlýtur að vera algjör nauðsyn upp á andlegu heilsuna. Ef þú hefur leyft barninu þínu að byrja á kynþroskablokkum eða krosshormónum, þá verður þú að verja þá ákvörðun fram í rauðan dauðann. Annars hlýtur eitthvað að brotna inni í þér.
Þú verður að trúa því að gögnin og transferlið sé nægjanlega gagnreynt, og að Cass-skýrslan sé bara „ein skoðun“ og að Yale-gagnrýnin sé sérfræðiálit „fagfólks víða um heim“. Annars stendur þú frammi fyrir möguleikanum á því að þú hafir tekið þátt í einhverju sem var ekki nægilega öruggt. Tilraunum á líkamlega heilbrigðum börnum.
Cass-skýrslan er ekki „lokaorðið“ í þeim skilningi að hún sé óhagganleg. Það er alveg rétt. En hún er ítarlegasta óháða úttektin sem hefur verið gerð. Hún byggðist á kerfisbundnum yfirlitum frá University of York sem sýndu að sönnunargögn fyrir kynþroskablokkum og krosshormónum hjá unglingum með kynama eru að af lélegum gæðum og meðferðinar eru ógagnreyndar. Flestar rannsóknir hafa háa brottfallstíðni, skort á góðum samanburðarhópum og stutta eftirfylgni. NHS England takmarkaði reglubundna notkun þeirra í kjölfarið. Svipaðar niðurstöður hafa komið fram í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi.
Cass bað transklíníkur fyrir fullorðna hjá NHS um gögn svo hægt væri að fylgja eftir um 9.000 börnum sem höfðu verið í þjónustu GIDS/Tavistock og sjá hvað varð um þau til lengri tíma.
Sex af sjö klíníkum neituðu.
Einungis ein samþykkti. Cass kallaði þetta „thwarted“ og lýsti því sem samræmdri og hugsanlega hugmyndafræðilega knúinni synjun.
Trans-lobbýið reyndi allt til þess að koma í veg fyrir rannsóknina!
Heilbrigðisráðherrar lýstu reiði sinni í þinginu og töluðu um óásættanlega hegðun. Þetta er ekki smáatriði. Þetta er skortur á gagnsæi um afdrif barna sem fengu meðferðina.
Yale-skjalið sem María vísar í er ekki ritrýnt. Höfundar þess hafa beitt sér fyrir affirmative nálguninni (kynstaðfestandi nálgun) og tengjast beint inn í bandarískar málsóknir. Ritrýnd grein í Archives of Disease in Childhood bendir á að það misskilji eðli Cass Review, að margar ásakanir séu vanhugsaðar og illa ígrundaðar; og að það hafi verið skrifað aðallega í dómsmálatilgangi. Að kalla þetta „harða gagnrýni fagfólks víða um heim“ er ofmat. Vægast sagt!
Á Íslandi er miðgildi aldurs við blokka 16,2 ár og við krosshormón 17,1 ár. Það er ekki sönnun þess að ferlið sé öruggt. Cass og aðrar úttektir sýna að flestir sem byrja á blokkum halda áfram á hormón, og að langtímaáhrif eru illa þekkt. Heildarmat er nauðsynlegt, en það jafngildir ekki því að veita ætti inngrip þegar gagnagrunnurinn er afar veikur.
Foreldrar sem hafa tekið þessa ákvörðun verða að verja hana. Það er skiljanlegt.
En það þýðir ekki að restin af samfélaginu eigi að gera hið sama.
Íslendingar munu eflaust verða eins og japönsku hermennirnir í Kyrrahafinu í seinni heimsstyrjöldinni sem vissu ekki að stríðið var löngu búið. Markmiðið hér á landi virðist vera að láta fólk ráfa um og stunda skottulækningar í myrkri aktívisma og fákunnáttu.
Á meðan önnur lönd hafa dregið úr notkun kynþroskablokka fyrir unglinga með kynama á grundvelli veikra gagna, höldum við áfram að tala um að „fagfólk víða um heim“ hafi hrakið Cass.
Við heyrum ekki í þeim sem hafa þegar skipt um stefnu.
Við heyrum ekki um «systematic reviews» sem sýna sama veikleika gagnanna.
Barnið þitt þarf fullorðna manneskju sem hlustar. En það þarf líka fullorðna manneskju sem getur sagt satt um styrk gagnanna – jafnvel þegar það er erfitt.
Að verja ákvörðun fram í rauðan dauðann er mannlegt.
En að gera það að stefnu heilbrigðiskerfisins ekki.