Ef þú hefur farið eitthvað út fyrir hússins dyr í sumar eru ágætar líkur á að þú hafir séð einhvern í Skjól-peysu. En hvað er eiginlega málið með þetta mynstur?
Þúsundir hafa prjónað svokallaðar Skjól-peysur, en prjónauppskriftin er seld til styrktar Kvennaathvarfinu. Sumir hafa prjónað margar peysur, en aðrir eru að taka upp prjónana í fyrsta sinn.