Þrjú ný ebólusmit greindust í Úganda í dag og þrír sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa látið lífið vegna veirunnar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó eftir að þeir veiktust við störf sín.
Ebólufaraldur geisar í nágrannaríkjunum tveimur og varað hefur verið við að veiran gæti smitast til enn fleiri landa í Afríku.
Yfirmaður sóttvarnastofnunar Afríku segir tíu ríki vera í hættu. Það eru Angóla, Búrúndí, Mið-Afríkulýðveldið, Lýðveldið Kongó, Eþíópía, Kenía, Rúanda, Suður-Súdan, Tansanía og Sambía. Hann segir mikinn hreyfanleika og óstöðugleika í löndunum gera veirunni hægara um vik að dreifast.
Fyrsta tilfelli ebólu greindist í Úganda fyrr í mánuðinum og einn hefur látið lífið þar. Í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hafa greinst 82 tilfelli og minnst sjö eru látnir.
Tölurnar eru þó sennilega miklu hærri – Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sagði í gær að grunuð tilfelli væru á áttunda hundrað og grunuð dauðsföll 177. Stofnunin hefur lýst yfir neyðarástandi vegna faraldursins.
Líkur á ebólusmiti á Íslandi eru að svo stöddu taldar mjög litlar en sóttvarnalæknir fylgist náið með faraldrinum.