Verulega dregur úr íþróttaþátttöku barna eftir að grunnskólagöngu lýkur og marktækur munur er á þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi eftir uppruna.
Þetta sýna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
43% framhaldsskólanemenda stunda íþróttir. Af þeim eru stelpur um þriðjungur og einungis hluti þeirra stundar íþróttir æfir með íþróttafélagi.
Meðal nemenda í 4. og 5. bekk grunnskóla má sjá mun á þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi eftir uppruna nemenda.
Marktækur munur á hreyfingu eftir uppruna
81% nemenda í 4. og 5. bekk grunnskóla, af íslenskum uppruna, segjast stunda íþróttir og hreyfingu frekar mikið eða mikið.
Í sama aldurshópi er hlutfallið 70% meðal nemenda af erlendum uppruna.
Munur milli nemenda af íslenskum og erlendum uppruna er mestur meðal nemenda í 7. bekk.
29% nemenda af íslenskum uppruna segjast hafa stundað hreyfingu daglega undanfarna sjö daga en einungis 16% nemenda af erlendum uppruna.
Í 10. bekk hefur hlutfall nemenda af íslenskum uppruna, sem segist stunda hreyfingu daglega, fallið niður í 21%. Í sama aldurshópi er hlutfall nemenda af erlendum uppruna, sem svara því sama, 18%.
Hvað kostar að vera 12 ára sundmaður?
Í kjölfar frétta um mikinn kostnað við íþróttaiðkun og markaðsvæðingu íþróttaiðkunar barna hefur Sundsamband Íslands tekið saman kostnað við allt sem viðkemur æfingum og keppnum hjá 12 ára keppnissundmanni.
Tekinn var saman kostnaður við 4-6 æfingar á viku með keppnishópi, þátttöku í Akranesleikum og Íslandsmeistaramóti aldursflokka.
Niðurstaðan var sú að misjafnt var eftir búsetu og félagi, keppnisáætlun og ferðakostnaði hver heildarkostnaður var.
En að meðaltali kostar um 225.000 krónur á ári að vera 12 ára keppnissundmaður.
Fyrir tvö börn er kostnaðurinn 385.000 krónur á ári.
Í tilkynningu Sundsambandsins segir að frístundastyrkir sveitarfélaga og systkinaafslættir hafi raunveruleg áhrif á möguleika barna til þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi.