Þetta hefur fréttaveitan AP eftir lögmanni þeirra en handtakan átti sér stað í gær.
Aðrir farþegar sem voru að ganga um borð í vél Alaska Airlines á Seattle-Tacoma-alþjóðaflugvellinum tóku upp á farsíma sína þegar fulltrúarnir, sem klæddust ómerktum jökkum og hversdagsbuxum, handtóku feðginin. Myndböndin fóru í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum.
Á myndskeiðunum sjást fulltrúarnir takast á við einhvern á jörðinni. Fluginu var seinkað en það var á leið til Los Angeles.
Innflytjenda- og tollgæslustofnun Bandaríkjanna (ICE) sagði í yfirlýsingu að fulltrúar hennar hefðu handtekið Ricardo Larrondo Mendoza, innflytjanda frá Mexíkó sem stofnunin sagði hafa dvalið lengur en vegabréfsáritun hans leyfði.
Í átökunum skvetti annar farþegi heitu kaffi á fulltrúana, að því er fram kom í yfirlýsingu ICE. Sú kona, Sofia Hernandez Mejia, reyndist vera ólöglega í Bandaríkjunum og hafa einnig dvalið lengur en vegabréfsáritun hennar leyfði, að sögn ICE.
Feðginin umræddu voru á leið í skírnarathöfn í Kaliforníu og hafa sótt um hæli í Bandaríkjunum þar sem þau hafa búið frá árinu 2015. Þau eru ekki á sakaskrá, að sögn lögmanns þeirra sem ræddi við AP.
„Þau hafa gert allt rétt og þetta er menntað fólk. Hún fór í háskóla og starfaði hjá góðgerðarsamtökum. Hvorugt þeirra er á sakaskrá. Þetta er bara sorglegt,“ sagði lögmaðurinn um feðginin.
Þeim er báðum haldið í Northwest ICE Processing Center í Tacoma. Alaska Airlines sagði að fulltrúar ICE hefðu ekki látið vita af aðgerðinni fyrir fram en hún átti sér stað á annasamri ferðahelgi í aðdraganda þakkargjörðarhátíðarinnar.