Skúrarnir voru inni á lokuðu vinnusvæði og því þurfti fyrst að komast inn. Iðnaðarsvæðið er hinum megin við álverið við Reykjanesbrautina.
Í tilkynningu slökkviliðs segir að dælubílar hafi farið í fimm útköll, þrjú vegna vatnsleka og eitt vegna elds í ruslatunnu, svo sem það sem fjallað er um að ofan. Auk þess voru í nótt 129 sjúkraflutningar, þar af 37 á forgangi.
Dælubílar fóru í fimm útköll, þrjú af þeim voru vegna vatnsleka, eitt vegna elds í ruslatunnu utandyra og eitt útkall um miðnætti vegna elds í þremur samliggjandi vinnuskúrum. Greiðlega gekk að slökkva í vinnuskúrunum eftir að við komumst að þeim en þeir voru inni á byggingarsvæði sem var afgirt. Mynd dagsins er frá því útkalli.