Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eld í vinnuskúrum á byggingarsvæði í Hafnarfirði kl. 23:48 í gærkvöld.
Guðjón Ingason, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að tveir dælubílar hafi verið sendir á vettvang. Það tók slökkvilið smá tíma að komast inn á svæðið sem er afgirt. Eldurinn logaði í þremur sambyggðum vinnuskúrum. Það tók slökkvilið um hálftíma að slökkva eldinn og slökkvistarfi er lokið.
Eldsupptök eru ókunn.
Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrst var greint frá því að eldurinn væri í tveimur vinnuskúrum en hann var í þremur sambyggðum vinnuskúrum.