„Þeir sem ætla að nýta sér gervigreind þurfa að skilja hætturnar,“ segir eðlisfræðingurinn Halldór Fannar Guðjónsson sem er yfirmaður hjá tæknifyrirtækinu Nvidia. Hann segir að gervigreindarnotkun verði að fylgja fræðsla.
Forstjóri Nvidia, Jensen Huang, lét af störfum fyrr í mánuðinum eftir að upp komst um framhjáhöld hans. Stjórn fyrirtækisins tilkynnti í dag að hún ætlaði að skipa hann aftur í starf forstjóra.
Halldór hefur unnið hjá Nvidia í 11 ár. Upphaflega framleiddi fyrirtækið skjákort fyrir tölvuleiki en þróaðist síðar í hermun sem er notuð til að þróa vélmenni. „Í dag er þetta þannig að leikjahlutinn er 10% af innkomu fyrirtækisins en 90% eru gagnaver og vélbúnaður sem er notaður beint í gervigreind,“ útskýrir Halldór.
Nvidia framleiðir nær alla örgjöfa sem gera gervigreindartækni mögulega.
Halldór segir fyrirtækið og stjórnskipulag þess mjög óvenjulegt. Stjórnskipulagið sé mjög flatt en í öðrum tæknifyrirtækjum sé það meira píramída-lagað. „Það er ein ástæðan fyrir því að það að forstjórinn hafi sagt af sér hefur auðvitað töluverð áhrif, af því að stjórnskipuritið er ekki hannað fyrir þessa breytingu, ef svo má segja.“
Nauðsynlegt að halda rétt á spilunum
Halldór segir gervigreindinni fylgja gríðarleg tækifæri fyrir smáþjóð eins og Ísland. Hún sé margfaldari á það sem lítil þjóð geti gert en Ísland sé aftarlega þegar komi að fræðslu um tæknina.
„En til þess að tækifærið sé nýtt þá þarf náttúrulega að halda rétt á spilunum og það er kannski þar sem við komum inn á þetta með hætturnar. Ef það er ekki haldið rétt á spilunum þá geta náttúrulega ýmsir hlutir farið úrskeiðis,“ segir hann.
„Til dæmis held ég að engum detti í hug að láta mann sem er ekki með ökuskírteini keyra bíl og jafnvel taka sætisbeltin úr bílnum eða jafnvel bara skera ofan af bílnum og hafa hann opinn eins og í gamla daga.“
Kannski þurfi að setja einhvers konar „umferðareglur“ fyrir gervigreind. „En svo þurfum við líka bara að passa okkur.“
Gervigreindin þurfi frelsi til athafna til að tortíma mannkyni
„Þegar menn eru að tala um að þetta sé að fara að tortíma mannkyninu þá gerist það náttúrulega ekki nema við gefum þeim frelsi til þeirra athafna. Það gerist ekki nema gervigreindin sé með aðgang að einhverju sem gæti gert það kleift,“ segir Halldór.
Ábyrgðin liggi þar af leiðandi að miklu leyti hjá tæknifyrirtækjum en einstaklingar og samfélög þurfi líka að taka skynsamlegar ákvarðanir.
Til að byrja með hafði gervigreindin sem almenningur hafði aðgang að ekki frelsi til athafna, að sögn Halldórs. „Nú er búið að bæta því við að gervigreindin geti athafnað sig og þá snýst þetta um hversu mikið frelsi þú ætlar að gefa henni og hversu mikið þú ætlar að treysta henni.“
Mikilvægt sé að treysta gervigreind ekki í blindni. Nvidia treystir gervigreindinni alls ekki og gengur út frá því að gervigreindarlíkön samræmist alls ekki mannlegum gildum, segir Halldór.
Halldór Fannar Guðjónsson, yfirmaður hjá tæknirisanum Nvidia, var gestur Silfursins í kvöld. Viðtalið við hann má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.